Innlent

Félagsmenn SFR samþykkja nýja kjarasamninga

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Bæði SFR og SFLÍ hafa samþykkt kjarasamningana sem samið var um í október.
Bæði SFR og SFLÍ hafa samþykkt kjarasamningana sem samið var um í október. Vísir/GVA
92,36 prósent þeirra sem greiddu atkvæði um nýjan kjarasamning SFR - Stéttarfélags í almannaþjónustu og ríkisins samþykktu hann í atkvæðagreiðslu sem lauk um hádegi í dag.

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu hefur því samþykkt nýjan kjarasamning sem gerður var við ríkið þannn 28. október. Alls greiddu 2396 atkvæði eða rúmlega 60% félagsmanna. 2213 sögðu já, 139 sögðu nei og 44 skiluðu auðu.

Félagsmenn SFR, Sjúkraliðafélag Íslands (SLFÍ) og Landsambands lögreglumanna áttu í langvinnri kjaradeilu við ríkið fyrr í vetur og fóru félagsmenn SFR og SLFÍ í verkföll. Þann 28. október var þó skrifað undir nýja samninga sem bæði SFR og SLFÍ hafa nú skrifað undir.

Atkvæðagreiðsla stendur yfir meðal félagasmanna Landsambands lögreglumanna og má reikna með að niðurstöður þeirra kosninga liggi fyrir á miðvikudaginn.


Tengdar fréttir

Verkfalli afstýrt um miðja nótt

"Við sem stóðum að þessum samningum erum mjög sátt við þessa niðurstöðu,“ segir Árni Stefán Jónsson, formaður SFR. "Þetta er alveg í anda þeirra markmiða sem við settum upp.“

Eitt af þremur félögum hefur samþykkt

Sjúkraliðafélagið, sem er eitt þriggja stærstu félaganna innan BSRB, hefur samþykkt nýjan kjarasamning við ríkið. Verkfall sjúkraliða og SFR stóð yfir í hálfan mánuð. Kosningu hjá SFR og LL lýkur í næstu viku. Starfsmenn sveitarf

Þrjátíu prósenta launahækkun og styttri vinnuvika

Félagsmenn SFR stéttarfélags, Sjúkraliðafélags Íslands og Landssambands lögreglumanna munu á næstu þremur árum fá allt að þrjátíu og tveggja prósenta launahækkun. Þá munu félögin taka þátt í tilraunaverkefni sem miðar að því að stytta vinnuvikuna um fjórar klukkustundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×