Ný ryksugutíska skekur miðbæinn Starri Freyr Jónsson skrifar 22. október 2015 16:30 Kristján Hjálmarsson, viðskipta- og almannatengslastjóri hjá H:N Markaðssamskiptum. Vísir/Stefán
Það var á blautum vordegi í apríl sem Kristján Hjálmarsson, viðskipta- og almannatengslastjóri hjá H:N Markaðssamskiptum, sá í fyrsta sinn mann draga ryksuguna sína niður Bergþórugötu í Reykjavík. Þetta þótti honum frekar sérkennileg sjón svo hann tók mynd á símann sinn og setti inn á Facebook-vegg sinn með stöðuuppfærslunni „Í 101 fer fólk út að ganga með ryksugurnar sínar“. Fáar lattésugur sleppa undan haukfránum augum Kristjáns.Vísir/KH Kristjáni fannst þetta skemmtileg upplifun en átti ekki sérstaklega von á að sjá fleiri slíka menn á vappi um miðborgina. Því varð undrun hans ekki minni daginn eftir þegar hann sá annan mann koma gangandi niður Bankastræti dragandi á eftir sér ryksugu eins og hann væri úti að viðra hundinn sinn. „Þá gerði ég mér grein fyrir því að hér væri eitthvað nýtt og spennandi að gerast, jafnvel ný tíska á ferð sem ég þyrfti að skoða betur.“ Þykist vera að vinna Eftir stutt spjall við tónlistarmanninn Stafrænan-Hákon varð til myllumerkið #lattesugan101 og merkti Kristján allar ryksugumyndir sínar þannig á Facebook. „Myllumerkið vísar til þess að lattélepjandi hipsterar í hundrað og einum eru svo töff að þeir fara frekar út að viðra ryksugurnar sínar en hundana. Það hafa bæst við nokkrar svona myndir í sumar og haust og mér finnst þetta alltaf jafn skemmtilegt enda fátt furðulegra en að sjá fólk viðra ryksugurnar sínar.“ Fyrsta ryksugumyndin var tekin á Bergþórugötu á drungalegum rigningardegi í apríl fyrr á árinu.Vísir/KH Flestar eru myndirnar teknar út um gluggann á fundarherberginu hjá H:N Markaðssamskiptum en herbergið er að hans sögn á besta stað í Reykjavík. „Út um gluggana er hægt að horfa upp Skólavörðustíg og Laugaveg, beint niður á Ingólfsstræti og niður Bankastrætið svo það er fátt sem fer fram hjá mér, sérstaklega í ljósi þess að ég er frekar forvitinn maður. Reyndar fer ég oft inn í fundarherbergi til að þykjast vera að vinna en er í raun bara að horfa út um gluggann í von um að ná mynd af lattésugu.“ Hipster með ryksugu við Gamla bíó.Vísir/KH Skellti á mömmu sína Kristján segist því miður hafa misst af nokkrum lattésugum sem hafa verið úti að viðra ryksugurnar sínar og gráti hann það sárt. „Stundum er ég bara of seinn að ná í símann eða einfaldlega upptekinn við eitthvað annað í vinnunni. Einu sinni þurfti ég samt að skella á mömmu mína til að ná góðri mynd. Ég held hún sé ekki enn búin að taka útskýringu mína trúanlega. „Mynd af hverju?“ hváði hún.“ Kristján fer oft inn í fundarherbergi og þykist vinna en er í raun að horfa út um gluggann í von um að ná mynd af lattésugu.Vísir/Stefán Að sama skapi er eiginkonu Kristjáns lítið skemmt yfir þessum uppátækjum eiginmannsins. „Það spilar sennilega inn í að ég hef gert mér það að leik að taka myndir af henni sofandi og á orðið dágott safn. Þetta eru frábærar myndir þó ég segi sjálfur frá, teknar í flugvél, rútu, í sófanum yfir sjónvarpinu og hvað eina. Ég stefni meira að segja á að halda sýningu með þeim myndum innan skamms. Það yrði meira að segja samsýning því þannig háttar til að góðvinur minn hefur líka tekið myndir af konunni sinni sofandi og mér skilst að það séu stórkostlegar myndir. Það stefnir því í hörku sýningu.“ Hipster viðrar ryksuguna sína á fallegum sumardegi.Vísir/KH Hann segir ólíklegt að lattésugurnar viti af myndatökum hans. „Ég verð því að biðja þær fyrirfram afsökunar á myndbirtingunum. Myndirnar eru oftast illa teknar og með lélegum instagramfilter. En það skiptir ekki öllu, aðalmálið er ryksugan sjálf. Ég mun halda þessu áfram í haust en á nú frekar von á að þeim fækki þegar vetur skellur á með tilheyrandi snjó og kulda.“
Reykjavík Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Jólaboð Evu: Kalkúnabringur með öllu tilheyrandi Matur Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Laufey á landinu Lífið Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Lífið Fleiri fréttir Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Sjá meira