Lífið

Frumsýnt á Vísi: Lagið fjallar um að sakna kærustunnar

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Auðunn Lúthersson gefur út sitt fyrsta myndband í dag.
Auðunn Lúthersson gefur út sitt fyrsta myndband í dag. Vísir/Vilhelm
Þetta er fyrsta myndbandið sem ég sendi frá mér,“ segir tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, en í dag fer myndbandið við lagið South America í spilun. Myndbandið var frumsýnt á Prikinu í gærkvöldi og mun eflaust vekja mikla athygli, enda Auðunn upprennandi tón­listar­maður.

Í næsta mánuði fer hann til Frakklands, þar sem hann tekur þátt í hinni vinsælu tónlistarakademíu sem kennd er við Red Bull. Þaðan hafa margar stjörnur stigið stórt skref í átt að góðum frama innan tónlistarheimsins.

Allt í einni töku

„Ég gerði myndbandið í samstarfi við Árna Beintein vin minn. Það er tekið upp á Þjóðarbókhlöðunni. Ég var búinn að vera með þessa hugmynd í maganum í nokkurn tíma og er mjög ánægður með útkomuna,“ útskýrir Auðunn.

Athygli vekur að myndbandið er ein löng sena og má með sanni segja að ástin blómstri fyrir aftan Auðun. Inntakið í laginu er einmitt ástin, en lagið var samið þegar kærasta hans var í öðrum heimshluta.

„Lagið er hluti af plötu sem ég er með tilbúna og er samin yfir tímabil þar sem kærastan mín var í reisu um Suður-Ameríku. Ég bjó þarna einn í alltof stóru húsi í Hafnarfirðinum, því foreldrar mínir búa í Bandaríkjunum. Ég var aleinn og vesæll. Þá kviknar á skáldskapargyðjunum, heldur betur,“ segir Auðunn.

Undirbýr sig andlega

Auðunn er ekki byrjaður að pakka fyrir ferðina til Frakklands, en hann mun dvelja í París á meðan hann tekur þátt í Red Bull-akademíunni. Stjörnur á borð við Aloe Blacc og Hudson Mohawke hafa útskrifast úr Akademíunni.

Auðunn verður í tvær vikur í París og mun sitja fyrirlestra hjá goðsögnum í franskri tónlist auk þess að koma fram á sýningarkvöldum. „Nei, ég er ekki farinn að pakka, en ég er farinn að undirbúa mig andlega. Þetta verður rosaleg törn, tveggja vikna keyrsla. Ég hef heyrt mikið um hversu stíft prógramm þetta verður og er því bara að gíra mig upp í það.“

Frumflytur efnið á Airwaves

Næst á döfinni hjá Auðuni er Iceland Airwaves. „Þar mun ég frumflytja allt efnið á nýju plötunni. Ég verð í Tjarnarbíói föstudagskvöldið 6. nóvember. Ég verð með Baldvin Snæ Hlynsson með mér, sem er ákaflega efnilegur hljóðfæraleikari. Við ætlum að hafa „live element“ í þessu, þó svo að tónlistin sé elektr­ónísk í grunninn.“

Tónlist Auðuns má skilgreina sem R&B, nánar tiltekið PB R&B, sem er kennt við bjórinn Pabst Blue Ribbon, sem er vinsæll á meðal hipstera. Þannig má í raun segja að þetta sé eins konar „hipstera-R&B-tónlist“. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×