Þykist taka að sér að skjóta ketti Jakob Bjarnar skrifar 2. október 2015 19:58 Facebooksíða Heiðars, gamals manns á Raufarhöfn, sem tekur að sér að skjóta ketti fyrir lítið fé. Heiðar Blomsterberg er hins vegar ekki til.
Heiðar Blomsterberg, gamall maður á Raufarhöfn, auglýsti í Facebook-hópnum Braskarar (sölusíða) að hann tæki að sér að aflífa ketti. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Skilaboð Heiðars eru svohljóðandi: „Góðan dag. Ég tek af mér að aflífa gælu dýr. Þá aðalega ketti. Hef aflífað nokkra ketti hérna á Raufarhöfn. Tek þau í skúrinn hjá mér og skýt þá, en allt gert mjög snirtilega og passa að dýrinn kveljist ekki. Hafið samband í einkaskilaboðum.“Hinn norski Svein Blindheim er andlit svikahrappsins.Þessi skilaboð eða auglýsing lagðist verulega illa í margan manninn sem þau sáu, en fólk gat ekki vitað að Heiðar Blomsterberg er svikahrappur, hann finnst ekki í Þjóðskrá og myndir sem hann notar af sér á Facebookvegg eru stolnar af netinu og eru af norskum manni sem heitir Svein Blindheim. Þessi sérkennilega saga kennir að vegirnir á Facebook geta reynst hálir.Best væri að berja Heiðar?Nokkrir reyna að benda Heiðari á að ekki sé heimilt lögum samkvæmt að skjóta gæludýr, nema dýralæknar. En, Heiðar, sem segist vera búsettur á Raufarhöfn, ber sig aumlega segir lausaganga katta bönnuð í Norðurþingi, þar sem hann býr og hann megi alveg skjóta þá. Í umræðum sem spretta undir þessu erindi Heiðars missa margir þolinmæðina og holskefla svívirðinga hvolfast yfir þennan gamla mann sem kallaður er „ræfill“ og „klikkhaus“. Einn missir þolinmæðina og segir að það þyrfti einhver að taka í Heiðar, hreinlega berja hann, það hljóti að vera til einhver lög sem segja það leyfilegt.Þetta er þakklætiðGreinilegt er að kattavinirnir eru margir og þeim er ekki skemmt. Heiðar hins vegar gefur sig hvergi og bendir að það megi skjóta gæsir. „Af hverju ekki ketti? Ekki spyrja svona heimskulega.“ Talsverð rekistefna er vegna þessa erindis og Heiðari þykir illa að sér vegið:Þessi kisi þarf ekki að óttast Heiðar Blomsterberg, því hann er ekki til.„Ég var bara að bjóðast til að hjálpa fólki sem vill losna við kéttina sína! er þetta þakklætið sem maður fær?“Gamall maður missir aðaláhugamál sittEn, svo tekur atburðarásin einkennilega vendingu því Heiðar Blomsterberg kemur fram með óvænta tilkynningu degi síðar, svohljóðandi: „Takk kærlega fyrir facebook!! Það kom til mín maður frá hreppnum og bannaði mér að skjóta kétti! Hann sagði mér að mikið af fólki hefðu hringt í hann og látið hann vita af þessu. Núna megið þið hafa það á samviskunni að gamall maður sé búinn að missa sitt aðal áhugamál og kanski nokkra þúsund kalla.“
Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Fleiri fréttir Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Sjá meira