Styrktartónleikar Mikka litla Guðrún Ansnes skrifar 23. september 2015 12:00 Mikki litli elskar að grínast og bregður sér oftar en ekki í gervi töframanns, þar sem Cheerios-hringirnir hverfa fyrir augunum á fólki. Beint ofan í magann á honum. „
Hann veit ekkert betra en ís, og þá er allavega hægt að tryggja að hann fái nóg af ís,“ segir Valdís Anna Jónsdóttir, móðursystir Mikaels Smára, sem stendur á bak við tvenna styrktartónleika. „Mikki litli er þriggja ára gamall og er með sjúkdóminn ataxia telangiectasia, sem er ólæknandi erfðasjúkdómur sem leggst á tauga- og ónæmiskerfið. Í stuttu máli þá munu útlimirnir hans lamast, og hann mun á endanum til dæmis ekki geta kyngt,“ segir Valdís. „Hann er kominn með hjólastól, sem hann elskar og finnst gríðarlegt sport að fá að rúnta um í. Hann kallar stólinn hlaupastól,“ útskýrir Valdís og bætir við að hér sé á ferðinni mikill stuðbolti sem elskar fátt meira en að grínast, knúsa, gera töfrabrögð og svo auðvitað ís.Valdís er ein þeirra sem standa fyrir tónleikunum, en hún er systir móður Mikka, Huldu Drafnar Jónsdóttur.„Maður verður svo lítils megnugur þegar maður stendur frammi fyrir svona veikindum, og mann langar svo mikið að hjálpa en veit ekki hvernig maður á að fara að því. Þess vegna ákváðum við að hjóla í styrktartónleika til að geta að minnsta kosti aðstoðað þau við að draga úr fjárhagsáhyggjunum sem fylgja,“ segir Valdís aðspurð um tilurð þessara tónleika. „Það hefur verið magnað að vinna að þessu, það eru allir svo tilbúnir til að leggja sitt á vogarskálarnar og hver einn og einasti hefur gefið vinnuna sína.“ Má með sanni segja að saman sé komið stórskotalið íslenskra tónlistarmanna sem mun leggja Mikka lið, en fyrri tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni í Reykjavík á fimmtudagskvöldið og munu þar stíga á svið listamenn eins og Regína Ósk, Erna Hrönn, Svavar Knútur, Ragnheiður Gröndal og fleiri. „Við munum svo endurtaka leikinn á Akureyri viku síðar, og þá með öðru tónlistarfólki, svo sem Eyþóri Inga, Hvanndalsbræðrum, Gospelkór Akureyrar og Þórhildi Örvars, svo einhver nöfn séu nefnd.“ Mun miðaverð vera 2.500 krónur og renna óskipt í styrktarsjóð Mikaels Smára. Frekari upplýsingar um tónleikana má nálgast hér
Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tíska og hönnun Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Fleiri fréttir Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Sjá meira