Þegar Lars neyddist til að reka Zlatan Kjartan Atli Kjartansson skrifar 10. september 2015 09:00 Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari.
Lars Lagerbäck hefur þjálfað margar stjörnur í gegnum tíðina. Til dæmis þjálfaði hann einn þekktasta knattspyrnumann Svía, Freddie Ljungberg, upp öll yngri landsliðin og í A-landsliðinu. Lars þjálfaði einnig sænsku ofurstjörnuna Zlatan Ibrahimovic. Þeir áttu í fínu sambandi og talast ennþá við. „Við tölum minna saman en áður. Undanfarið ár eða svo höfum við sent nokkur SMS á hvor annan.“ Zlatan hefur það orð á sér að vera nokkuð erfiður í samskiptum, en Lars segir það ekki hafa verið vandamál að þjálfa hann. „Það var í raun nokkuð auðvelt. Hann er auðvitað einstakur karakter. Sko, þegar ég byrjaði að þjálfa trúði ég því algjörlega að maður ætti að koma eins fram við alla leikmenn. En það breyttist fljótt og ég lærði að maður þarf að meta alla leikmenn á sömu forsendum. Ég þurfti ekki að koma öðruvísi fram við Zlatan vegna þess að hann er þessi stjarna sem hann er, heldur vegna þess hvernig persónuleiki hann er og vegna þess hver bakgrunnur hans var.“ Fyrstu ár Lars sem landsliðsþjálfara var Zlatan ekki ein af stjörnum liðsins. „Hann er ótrúlegur karakter og vill alltaf vera sá besti. Hann lagði mikið á sig og varð hægt og rólega bestur.“ Lars rifjar upp sögu frá því þegar hann þurfti að reka Zlatan tímabundið úr liðinu, fyrir að brjóta eina af þeim fáu reglum sem Lars og þjálfarateymið settu liðinu. „Leikmenn áttu ekki að fara út þetta kvöld, þeir áttu að vera inni á hótelinu frá kvöldverði fram að morgunmat daginn eftir. Zlatan fór út ásamt tveimur öðrum leikmönnum. Klukkan sex morguninn eftir hringdi ritari sænska knattspyrnusambandsins í mig og tjáði mér að eitt af dagblöðunum væri með myndir af þremur leikmönnum úti á lífinu. Þarna þurfti að taka ákvörðun. Við ákváðum að senda þá heim.“Lars þjálfaði Zlatan sem hann segir vera ótrúlegan karakter.Lars segist hafa haldið að eftir þetta myndi hann alltaf verða óvinurinn í augum Zlatans. Lars kallaði Zlatan á fund til sín og útskýrði ákvörðunina fyrir honum. „Hann sagði eiginlega ekkert við mig á móti. Enginn af þessum þremur leikmönnum var sáttur. Þeir sögðust hafa haldið að þeir myndu frekar fá sekt, en ég hef ekki trú á þannig refsingu. Ég sendi þá heim og þeir misstu af þessum eina leik. Hinir tveir komu strax til baka í leikinn á eftir, en Zlatan gaf ekki kost á sér fyrr en tveimur leikjum síðar.“ Lars segir að væntanlega hafi samband Zlatans og Rolands Anderson, aðstoðarþjálfara liðsins, hjálpað til. „Roland þjálfaði Zlatan í yngri flokkunum í Malmö og var sá sem mælti með honum í aðalliðið. Zlatan hefur alltaf borið mikla virðingu fyrir Roland og það skipti örugglega sköpum í því að hann ákvað að snúa aftur í landsliðið. Zlatan sagði ekki neitt neikvætt um mig vegna málsins í fjölmiðlum. Það eina sem hann hefur sagt um málið opinberlega var í ævisögu hans. Þar sagðist hann vera ósáttur við að ég sagði okkur – þjálfarateymið – hafa tekið þá ákvörðun að senda hann heim. Zlatan vildi að ég segði að ég hefði tekið ákvörðunina. Ég veit ekki hvernig ég orðaði þetta við hann, líklega hefur hann rétt fyrir sér, en það skipti aldrei máli fyrir mig. Þetta tengist meira uppeldi Zlatans. Fyrir honum er bara einn yfirmaður, bara einn sem ræður. Honum líkar ekki við neina hópavinnu eða fundi. Hann vill bara hlusta á yfirmanninn.“ Lars segir Zlatan hafa reynst sér vel. „Mér þykir alveg afskaplega vænt um hann. Við náðum vel saman öll árin sem við unnum saman. Hann er stórkostleg manneskja. En hann hefur hliðar sem maður þarf að vinna í kringum og þarf alltaf að vera á tánum til þess að hann kaupi mann sem leiðtoga.“ Í sænska liðinu á þessum tíma voru margir þekktir leikmenn og sterkir karakterar. „Við vorum með marga sem vildu vera bestir. Mikil samkeppni ríkti í liðinu sem skapaði líka árekstra,“ segir Lars og bætir við að ekkert svoleiðis sé í íslenska landsliðinu. „Nei, þetta er allt öðruvísi. Í hvert skipti sem við hittumst á keppnisferðalögum er þetta eins og bekkur í skóla sem hittist aftur eftir sumarfrí.“
Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira