Hætta framleiðslu Múmínbollanna í heimalandinu: „Við aðdáendurnir verðum að láta í okkur heyra“ Stefán Árni Pálsson skrifar 11. september 2015 15:00 Erna Hrund á flott safn af bollum. vísir „
Já, ég get ekki sagt annað en mér finnist þetta dálítið leiðinlegt þar sem maður missir þarna tengingu bollanna við Finnland og þannig við einhvern vegin heimaland múmínálfanna,“ segir Erna Hrund Hermannsdóttir, stjörnubloggari og samfélagsmiðlaráðgjafi um þær fréttir að framleiðslu múmínbolla verði hætt í Finnlandi. Eins og fram kemur í frétt mbl hefur verið ákveðið að flytja framleiðslu á Arabia-vörunum úr landi en 130 manns störfuðu í verksmiðjunni. Erna Hrund er sérstakur aðdáandi og á rosalegt Múmínsafn sem hún sýnir á bloggsíðu sinni. „Svo er engin leið að geta sagt um að gæði bollanna verði eins og hvort það sé verið að auka framleiðsluna þá til muna og þá verða bollarnir kannski ekki jafn sérstakir. Það er svo gaman að safna bollunum því þeir eru svo veglegir og fallegir og einstakir og ég er smá hrædd um að þeir muni missa sjarma sinn.“ Erna segir þetta vera skrítna ákvörðun. „Þetta hlýtur auðvitað að vera vegna aukinna vinsælda. Kannski er auðveldara að framleiða meira magn í stærri verksmiðjum. En ég vona kannski að með því að við múmínaðdáendurnir látum í okkur heyra þá kannski sé Arabia Finland tilbúið til að endurskoða ákvörðun sína.“ Bollarnir hafa verið að vaxa gríðarlega í vinsældum síðustu ár.Sjá einnig:Forfallinn aðdáandi verður að eignast alla bollana „Þegar ég byrjaði að safna fyrir nokkrum árum núna fannst mér ekkert mikið um það, eða kannski fór bara svona lítið fyrir þeim. Núna seljast bollarnir sem koma í takmörkuðu upplagi upp mjög hratt. Það er vinsælt hjá okkur að skipta á bollum innan múmínhópsins á Facebook og ég þræði Ebay í leit af bollum sem eru hættir í framleiðslu. Mér finnst ofboðslega gaman að safna múmínbollunum og ég elska hvern og einn bolla, þeir eru allir jafnir í mínum augum þó ég eigi reyndar alveg einn uppáhalds.“ Hún segir að bollarnir séu alveg við það að ná Kahler brons vasanum í vinsældum. „Dýrustu bollarnir fara á um hundrað þúsund krónur á ebay - safnið mitt er eiginlega bara orðið þannig að það verður bara veglegur arfur fyrir strákana mína.“
Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira