Hælisleitandanum áður verið veitt hæli í öðru Evrópuríki Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. ágúst 2015 15:16 Maðurinn fluttur af vettvangi í dag. Vísir/Ernir
Hælisleitandinn frá Íran sem hellti yfir sig eldfimum vökva í húsakynnum Rauða Krossins í Efstaleiti í Reykjavík í dag kom hingað til lands og sótti um hæli í mars. Málið hefur tafist nokkuð umfram 90 daga viðmiðunartíma í málum hælisleitenda vegna bágs andlegs ástands mannsins og erfiðleika tengdum því. Það kemur fram í tilkynningu frá Útlendingastofnun. Þar segir að manninum hafi áður verið veitt hæli og viðurkennd staða flóttamanns í öðru Evrópuríki. Hann hafi engu að síður sótt um hæli hér á landi í mars. Maðurinn hótaði að kveikja í sér í hádeginu í dag og var fjölmennt lið lögreglu auk slökkviliðsmanna kallað út. Ekki kom þó til þess að maðurinn kveikti í sér en hann var fluttur af vettvangi af lögreglu. Útlendingastofnun segir að framganga mannsins og önnur sjálfskaðandi hegðun muni ekki hafa áhrif á framgang eða úrlausn í hans máli. Það sé í hefðbundnum farvegi og muni stofnunin kappkosta að ljúka því sem fyrst, rétt eins og öðrum málum.„Þegar hælisleitendur hóta að skaða sjálfa sig eða sýna af sér sjálfskaðandi hegðun leggur Útlendingastofnun áherslu á að tryggja þeim viðeigandi aðstoð og ráðgjöf með aðkomu félagsþjónustunnar, Rauða kross Íslands, sálfræðinga, lækna og eftir atvikum talsmanns viðkomandi. Allt kapp er lagt á að veita aðstoð og liðsinni í samræmi við óskir og þarfir viðkomandi.“
Tengdar fréttir Hælisleitandi hellti yfir sig eldfimum vökva Fjölmennt lið lögreglu og slökkviliðs var kallað út að húsnæði Rauða Krossins upp úr klukkan tólf í dag. Hælisleitandi hafði þá hótað að því að kveikja í sér. 28. ágúst 2015 12:27 Mest lesið Allir fundnir óslasaðir eftir snjóflóð Innlent Bílar sitja fastir vegna þungrar færðar Innlent Leiðinlegt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“ Innlent Starfsmenn ráðuneytisins fengu egg í sérprentuðum öskjum en kennarar una ölmusu foreldra Innlent Talið að milljónir mótmæli Bandaríkjaforseta Erlent Líkamsárás í verslunarmiðstöð Innlent Vonast til að náttúran verði þeim hliðholl Innlent Blóð úr hinum grunaða á hnífi á vettvangi Innlent Framkvæmdaleyfi Hvalárvirkjunar fellt úr gildi Innlent Perutertan lifir af inngildingu heilsufæðis á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Pétur Markan bæjarstjóraefni Okkar Hveragerðis Sjö af hverjum tíu fýlum með plast í maganum Sameining hreppanna tveggja samþykkt Bílar sitja fastir vegna þungrar færðar Blóð úr hinum grunaða á hnífi á vettvangi Vonast til að náttúran verði þeim hliðholl Allir fundnir óslasaðir eftir snjóflóð Framkvæmdaleyfi Hvalárvirkjunar fellt úr gildi Gular veðurviðvaranir og vegir á óvissustigi Leiðinlegt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“ Ekið á mann í Þrengslunum Eins og síðast en „einu númeri minna“ Vilja ekki takmarka trúariðkun „umfram það sem brýnir almannahagsmunir krefjast“ Úrvalsdeild og neðri deild en restin í vandræðum Kennarar botna aftur ekkert í Ingu Sæland Lokun Hormússunds: Takmörkuð áhrif á áburðarverð til bænda í ár en óvíst um framhaldið Vinstrið á blússandi siglingu Eldur kviknaði í bíl Líkamsárás í verslunarmiðstöð Perutertan lifir af inngildingu heilsufæðis á Alþingi Telur ríkisstjórn skemma efnahaginn vísvitandi fyrir ESB-atkvæði Starfsmenn ráðuneytisins fengu egg í sérprentuðum öskjum en kennarar una ölmusu foreldra „Fólk var rosalega hrætt þegar það kom sjónvarp“ Ráðist að vagnstjóra og strætónum rænt í Garðabæ Innviðagjald og hækkun vasks eyðileggi samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar Guðmundur orðaður við Flokk fólksins í Reykjavík Alvarleg mistök hjá barnaverndarþjónustu: „Við sofnuðum á verðinum“ Dönsk börn fá sem nemur fjórum auka kennsluárum Foreldrar segja lögreglu gera lítið úr meintu kynferðisbroti á barni sínu á leikskólaaldri Alvarleg mistök, dýrara í baðlónin og páskaveðrið Sjá meira
Hælisleitandi hellti yfir sig eldfimum vökva Fjölmennt lið lögreglu og slökkviliðs var kallað út að húsnæði Rauða Krossins upp úr klukkan tólf í dag. Hælisleitandi hafði þá hótað að því að kveikja í sér. 28. ágúst 2015 12:27