Við viljum betra líf Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. ágúst 2015 11:30 Þau eru lykilfólk á námskeiðinu, Albert Bates, Robyn Francis og Mörður Ottesen. Mynd/SIF YRAOLA „
Við erum aðallega í hamingjugöldrum,“ segir Mörður Ottesen hlæjandi þegar hann er spurður frétta af vistræktarnámskeiðinu sem hann stendur fyrir í Hlíðardalsskóla í Ölfusi þessa dagana og alla næstu viku. Er þetta þá ekki bara gamla hippastemningin, spyr ég „Það mætti kalla okkur hippalíki nema hvað við erum eiturlyfjalaus og akademískari en þeir. Hipparnir vildu frið en vissu ekki hvernig þeir ættu að ná honum. Við viljum betra líf og vitum nákvæmlega hvernig við eigum að fara að því. Við erum með lausnir fyrir umhverfið í kringum okkur,“ svarar hann og hljómar sannfærandi. Mörður segir markmið námskeiðsins að mennta hóp vistræktarhönnuða og gera þátttakendum fært að tileinka sér vistrækt, miðla kunnáttu sinni og starfa að verkefnum eftir þeirri hugmyndafræði. „Vistrækt gengur út á að vinna með jörðinni og styrkja hana, í stað þess að ganga á hana og auðlindir hennar með einhæfum búskaparháttum, notkun tilbúins áburðar og eiturefna.“ Hann segir umhyggju fyrir jörðinni einnig umhyggju fyrir mannkyninu því heilbrigðari jörð þýði betra umhverfi fyrir manninn. „Á námskeiðinu læra þátttakendur hvernig má fá meiri uppskeru af landinu án notkunar áburðar og eiturefna og nýta aðlindir heimsins mun betur en gert er.“ Tuttugu og fimm manns eru á námskeiðinu í Hlíðardalsskóla, þar af tíu Íslendingar. Hinir eru frá nokkrum Evrópulöndum, Kanada, Bandaríkjunum og einn nemendanna gerði sér ferð frá Costa Riga, að sögn Marðar. Hann er afar ánægður með kennarana tvo sem honum tókst að lokka til landsins, segir þá heimsþekkta fyrir frumkvöðlastarf sitt. „Það þykir tíðindum sæta að Albert Bates og Robyn Francis kenni saman en þau hafa í kennt vistrækt í áravís um allan heim. Albert er umhverfislögfræðingur frá Bandaríkjunum og brautryðjandi á sviði vistræktar og Robyn er frá Ástralíu, hún hefur þróað kennsluefni og kennt á meira en hundrað námskeiðum.“ Sjálfur kveðst Mörður hafa lifað samkvæmt kenningum vistræktunar í tvö ár, fyrst á Íslandi og síðar Noregi. „Í sumar var ég með tvo hektara af landi og vinn að því ásamt fleirum að byggja þar upp vistvænt þorp frá grunni.“ Þann 7. september segir Mörður norskan snilling verða með námskeið í Hlíðardalsskóla, sá ræktar ekki færri en 200 ætar fjölærar plöntur í garðinum sínum í Þrándheimi. En telur hann að þessi vistræktarstefna eigi eftir að ná fótfestu á Íslandi? „Já, ég er algerlega fullviss um það. Það er bara verst hversu erfitt er að fá fjármagn í græn verkefni hér á landi.“
Mest lesið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Fleiri fréttir Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka Sjá meira