Stjörnurnar styðja Forynjurnar - Myndband Stefán Árni Pálsson skrifar 29. júlí 2015 21:00 Sigga Kling, Þorgrímur og Erpur eru stuðningsmenn Forynjanna.
Mýrarboltaliðið Forynjur hefur aflað sér aðdáenda um allt land ef marka má myndband sem birt hefur verið á netinu. Þar lýsa m.a. nokkrir þjóðþekktir einstaklingar yfir stuðningi sínum við liðið. Má þar nefna sem dæmi Sigríði Klingenberg spákonu með meiru, fótboltagoðið og rithöfundinn Þorgrím Þráinsson, Guðmund Steingrímsson þingmann og eiginkonu hans Alexíu Björg Jóhannsdóttur leikkonu, rapparann Blaz Roca og fyrrum Evrópumeistarann og FC Karaoke-manninn Pétur Magnússon. „Við eigum einfaldlega langbestu aðdáendurna,“ segir Kristín Sigurðardóttir, fyrirliði Forynja. „Ár eftir ár höfum við notið sívaxandi stuðnings og við ákváðum nú að sýna opinberlega hversu flott baklendi við höfum.“ Liðið stendur nú í ströngu við undirbúning þátttöku sinnar á Evrópumeistaramóti mýrarboltans sem fer fram á Ísafirði um verslunarmannahelgina. Forynjur hafa undanfarin ár vakið athygli fyrir litríka þátttöku um árabil. Liðið, sem myndað er að mestu af heimamönnum, er eitt af rótgrónari keppnisliðum Mýrarboltans og var sett á stofn 2007. Í myndbandinu má sjá einnig bregða fyrir svipmyndum af Forynjum í gegnum árin en það var Bjarki Friðbergsson sem sá um klippingu þess. „Bjarki er hirðljósmyndarinn okkar og hann sá um að uppsetningu myndbandsins og við Forynjur erum alveg í skýjunum yfir því hvernig til tókst. Við vonum að fólk hafi gaman að og skelli sér vestur í drulluna þar sem fjörið er,“ segir Kristín sem segist fullviss um að mótið verði spennandi og skemmtilegt í ár. „Þetta verður ár Forynja, það er ég alveg viss um.“
Mest lesið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Lífið Gítarleikari The Cure er látinn Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Taldi sig hólpna því síminn hringdi aldrei Lífið Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Lífið Fleiri fréttir Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein