Haukur Ingi: Þessi gluggaviðskipti eru mikið lotterí Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. júlí 2015 15:30 Haukur Ingi Guðnason ætlar að styrkja Keflavíkurliðið. mynd/skjáskot
Keflavík á gríðarlega mikilvægan leik í Pepsi-deild karla á sunnudagskvöldiðið þegar liðið mætir Leikni í 11. umferð deildarinnar. Keflavík er á botni Pepsi-deildarinnar með aðeins fjögur stig eftir tíu leiki og á nú fyrir höndum tvo leiki gegn liðum í fallbaráttunni; Leikni og Víkingi. „Þetta verður hörkuleikur. Leiknismenn eru mjög skipulagðir og lið sem erfitt er að eiga við. Við erum tilbúnir að leggja það á okkur sem þarf til að vinna þennan leik,“ segir Haukur Ingi í samtali við Vísi. Keflvíkingar eru byrjaðir að styrkja sig fyrir seinni hluta deildarinnar, en þeir fengu bandaríska framherjann Chucwudi Chijindu til sín á dögunum. Hann verður löglegur þegar félagskiptaglugginn opnar 15. júlí. „Þessi gluggaviðskipti eru mikið lotterí. Það er mikið sem gerist og mikið af allskonar mönnum sem hafa samband og eru að falbjóða sig. Maður þarf að vanda valið því það er fullt af góðum fótboltamönnum sem skipta um lið í glugganum en þeir smella ekkert alltaf inn í viðkomandi lið,“ segir Haukur Ingi. Hann segir að Keflavík sé með nokkra leikmenn á blaði og stefnan er að styrkja sig enn frekar. „Við erum að skoða hvað passar best inn í leikkerfið og liðið og samsetningu hópsins. Svo er þetta alltaf spurning um peninga. Við reynum að vanda valið og svo krossleggja fingur um að lukkan verði nú aðeins með okkur,“ segir Haukur Ingi. „Við ætlum að styrkja liðið frekar en hópinn. Það er tvennt ólíkt. Ég tel það lykilatriði fyrir okkur að fá menn sem styrkja byrjunarliðið. Þessu erum við að vinna í, en að öllu óbreyttu munum við styrkja liðið,“ segir Hakur Ingi Guðnason.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Sjá meira