Miðasala á Þjóðhátíð gengur vel Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. júlí 2015 18:12 Frá Þjóðhátíð í Eyjum í fyrra. Vísir/Óskar P. Friðriksson
Aðeins eru laus sæti með Herjólfi í tveimur ferðum til Eyja föstudaginn 31. júlí þegar múgur og margmenni mun streyma á Heimaey á Þjóðhátíð. Hörður O. Grettisson, sem situr í Þjóðhátíðarnefnd, segir miðasölu á pari við það sem var í fyrra. Birgir Guðjónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, sagði á föstudagskvöldinu í fyrra aldrei hafa séð fleiri í brekkunni. Ekki liggur fyrir hve margir mættu á Þjóðhátíð í fyrra enda Eyjamenn ekki viljað upplýsa fjölmiðla um nákvæmar tölur hvað varðar miðasölu. Það er óbreytt en Hörður segir miðasöluna ganga vel. Aðeins eru laus sæti í tvær ferðir með Herjólfi til baka frá Eyjum á mánudeginum sem gefur til kynna sókn fólks í miða á Eyjuna fögru um verslunarmannahelgina. Þá siglir farþegaferjan Viking til Eyja og er enn hægt að fá miða í ferðir hjá þeim. Óhætt er að fullyrða að dagskráin hafi sjaldan verið jafn góð. Bubbi & Dimma, FM Belfast, AmabAdamA, Páll Óskar, Friðrik Dór, Ný Dönsk, Sálin hans Jóns míns, Júníus Meyvant, Land & Synir, Sóldögg, Maus, Jón Jónsson, Ingó & Veðurguðirnir, Buff ásamt Ágústu Evu, Páli Óskari, Eyþór Inga og Sverri Bergmann og FM95Blö koma fram á hátíðinni sem venju samkvæmt verður sett á föstudeginum. Kvöldið á undan er svo hið sívinsæla húkkaraball. Hitað var upp fyrir Þjóðhátíð í veislu sem styrktaraðilar blésu til í Viðey á dögunum. Þar var stemningin góð og mátti meðal annars finna fólk sem ætlar í brúðkaupsferð til Eyja. Myndband frá upphituninni má sjá hér að neðan.
Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Robbie Williams einhverfur Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Lífið samstarf Fleiri fréttir Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Sjá meira