Hvernig Hafnarfjarðarbær fór illa með skattkortið mitt Birgir Fannar skrifar 16. júlí 2015 15:50 Hér er nokkuð óvænt sem ég lenti í síðastliðinn júnímánuð. Þannig var að ég er búin að vera á námsstyrk hjá Hafnarfjarðarbæ í nokkurn tíma og rétt er að nefna að ég er ekki að kvarta yfir því eða þeirri þjónustu á nokkurn hátt. Ef eitthvað er þá er ég þakklátur fyrir það tækifæri þegar það bauðst. Það er hins vegar hvernig skattkortið mitt var notað þegar ég var að þiggja styrkinn sem er vandamálið sem kom upp loksins þegar þegar ég fékk vinnu í júní síðastliðnum. Styrkurinn virkar þannig að í enda hvers mánaðar þarftu að skila inn mætingu eða einkunnum ef það er í lok annar. Svo hér er málið ég skila inn mínum einkunnum í maí og fæ síðan greiddan styrk samkvæmt því en það sem ég vissi ekki og eflaust engum hefði dottið í hug sem möguleika er að sá styrkur er talinn sem greiðsla fyrir júní ekki maí eins maður hefði nú haldið því ég var að skila inn afrakstri skólagöngu sem átti sér stað í maí. Júní var ekki byrjaður þegar ég skilaði inn gögnunum. Hvernig er það vandamál? Jú því þá var persónuafslátturinn sem ég átti að fá á skattkortið í júní notaður fram í tímann. Svo þegar ég fæ greidd mín laun 1. júlí þá fékk ég minna útborgað en ef ég hefði verið á bótum. Því 37,7 prósent fóru í skatt. Svo ég hef samband við félagsþjónustuna og spyr út í þetta og jú hvað þá varðar þá er þetta júní greiðsla. Og ég spyr þá hvort engin aðstoð sé í boði því ég var lentur í fjárhagslegum vandræðum út af þessu og mátti þakka fyrir að eiga fyrir leigu og reikningum. En þá er það ekki hægt því ég fékk greitt meira enn 158.000 og þá er ekkert hægt að hjálpa þér frekar og það er ekkert tekið tillit til skatts þarna. Þó svo að augljóslega var ég að lenda í að fá allt tekið í skatt út af því hvernig þau voru að nota skattkortið. Svo hér er sem sagt stofnun sem hjálpar fólki í fjárhagslegum vandræðum orðin orsökin að því að ég sé í fjárhagslegum vandræðum og vilja ekkert kannast við að þeirra sé sökin. Þetta hef ég frá ráðgjafanum sem ég þrætti við og svo þegar mér ofbauð það fór ég með þetta í bæjarstjórann sem vísaði þessu til sviðstjóra félagsþjónustunnar og viti menn eina sem koma úr því voru sömu reglunar. Því enginn þarna vill sjá villuna í þessu. Svo er á sama tíma verið að ýta á að þú farir að vinna skömmu eftir að ég var byrjaður að vinna var hringt frá félagsþjónustunni og ég er spurður mjög kuldalega hvernig atvinnuleitin sé að ganga og mér létti mikið að geta svarað því að ég væri í vinnu. Því ég veit ekki hverslags skammir ég hefði fengið hefði ég ekki verið þá þegar vinnandi. Svo þeir vilja að þú farir að vinna en hika svo ekki við að misnota skattkortið þitt fram í tímann þannig að þú færð gott sem engar tekjur þegar þú loks ferð að vinna. Já er ekki eitthvað bogið við þetta? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Er netið að farið að skipta okkur of miklu ? Varð hugsað út í þetta þegar kunningi einn minntist á að hann þyrfti að hringja í skólann til að sjá einingarnar sýnar af því það var ekki í boði fyrir hann að netinu. Og fyrir honum virtist það nú meiri fyrirhöfnin að þurfa að hafa svona fyrir þessu. 2. júlí 2015 09:36 Sorry, ég skil ekki stjórnmál 9. júlí 2015 16:20 Hvernig reiði festir rót Öll höfum við einhvertíma lent í því að verða reið yfir einhverju hvort sem það er eitthvað sem einhver sagði eða gerði eða ósætti við hvað maður sjálfur sagði eða gerði. 8. júní 2015 07:49 Mest lesið „Ég dó á 44 ára afmælinu mínu“ Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson Skoðun Óútskýrð veikindi skipstjóra um nótt Kristinn Hrafnsson Skoðun Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið Óðinn Svan Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Borg óttans Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir Skoðun Það er gott að vinna í Kópavogi Karen Rúnarsdóttir Skoðun Halldór 09.05.2026 Halldór Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Reykjanesbær má ekki verða póstnúmeralottó fyrir fjölskyldur í vanda Dagur Jóhannsson skrifar Skoðun Meira lýðræði fyrir Múlaþing Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Raki og mygla í skólum er lýðheilsumál Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun „Ég dó á 44 ára afmælinu mínu“ Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Börnin á bakkanum Þórey María E. Kolbeins skrifar Skoðun Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið Óðinn Svan skrifar Skoðun Framsækin Framsókn Halldór Bachmann skrifar Skoðun Sterk landsbyggð styrkir Ísland allt Ragnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Það er gott að vinna í Kópavogi Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Borg óttans Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Woke – rétttrúnaður og refsivöndur Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir skrifar Skoðun Mennt er máttur í Garðabæ Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifar Skoðun Gaman að vera gamall í Garðabæ Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjölskylduvænn Garðabær: Innleiðum sumarfrístund Finnur Jónsson skrifar Skoðun Nokkur orð um kosningar Ástríður Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Menningar- og listaskrifstofa Reykjavíkurborgar Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Um þagnir, vald og rammana sem við smíðum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar Skoðun Hvert stefnir menningin? Elsa María Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Seltjarnarnes þarf uppbyggingu sem skilar árangri Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar Skoðun Bætum þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ Ragnheiður Hergeirsdóttir skrifar Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland verði hluti af evrópsku sambandsríki Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Samgöngur fyrir börn Stein Olav Romslo skrifar Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erindi Miðflokksins er mikilvægt Helgi Áss Grétarsson skrifar Sjá meira
Er netið að farið að skipta okkur of miklu ? Varð hugsað út í þetta þegar kunningi einn minntist á að hann þyrfti að hringja í skólann til að sjá einingarnar sýnar af því það var ekki í boði fyrir hann að netinu. Og fyrir honum virtist það nú meiri fyrirhöfnin að þurfa að hafa svona fyrir þessu. 2. júlí 2015 09:36
Hvernig reiði festir rót Öll höfum við einhvertíma lent í því að verða reið yfir einhverju hvort sem það er eitthvað sem einhver sagði eða gerði eða ósætti við hvað maður sjálfur sagði eða gerði. 8. júní 2015 07:49
Skoðun Reykjanesbær má ekki verða póstnúmeralottó fyrir fjölskyldur í vanda Dagur Jóhannsson skrifar
Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar
Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar
Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar