Lífsreynsla föður í fæðingar „orlofi“ Geir Gunnar Markússon skrifar 3. júlí 2015 15:38 Það berast sífellt fréttir af því að þeim feðrum fækki stöðugt sem nýta sér rétt sinn til fæðingarorlofs. Ég vil með þessum skrifum hvetja sem flesta feður til að taka fæðingarorlof og helst að þeir hafi það sem lengst. Það er sorgleg staðreynd að greiðslugeta Fæðingarorlofsstjóð er á pari við greiðslugetu gríska ríkisins, eftir að hið margumtalaða hrun varð hér árið 2008. Við getum þó þakkað fyrir að við búum í landi sem býður feðrum uppá fæðingarorlof þó vissulega væri óskandi að vera ekki á sultarlaunum á meðan. Það ætti að vera hægt að gera betur á okkar ríka Íslandi. Mig langar að byrja á að benda þeim feðrum sem ekki hafa tekið fæðingarorlof áður hversu mikið rangnefni „fæðingarorlof“ er. Það á ekkert skilt við eiginlegt „orlof“ þar sem maður liggur t.d í leti með fætur upp í loft á sólarstönd með einn kaldan í hendi. Réttara væri að kalla fæðingarorlof fæðingarvinnu og það í rúmlega 100% stöðu. Þau eru ýmis verkin sem heimavinnandi húsfaðir þarf að huga að og ber þar hæst að nefna að fæða, klæða, svæfa, skipta á bleyjum og þvo þvott. Þar sem ég vill standa mig vel í öllum þeim störfum sem ég tek að mér þá er það full dagskrá að sinna þessu öllu þær 8-9 klukkustundir sem ég og dóttir mín erum ein saman heimavið. Oft dugir sá tími ekki til og margt af þessum verkum eru ógerð er mamman kemur heim. Ég hef sinnt þónokkrum störfum um ævina og er fæðingarvinnan ein sú erfiðasta sem ég hef tekið að mér, ekki líkamlega þó heldur andlega. Kæru kynbræður; prófið t.d. að skipta á stútfullri kúkableyju með barnið organdi og spriklandi og komast að því að blautþurrkurnar eru búnar þegar bleyjan er komin af (að kaupa nýjar var eitt af verkum gærdagsins sem þú komst ekki í). Áður en þú veist af er allt herbergið útatað í kúk og eina ráðið að setja bæði þig og barnið í bað, róa það niður og þrífa bæði herbergið og stóran hluta íbúðarinnar að því loknu. Svona barningur er einmitt góð ástæða þess að allir feður ættu að taka fæðingarorlof því þá fyrst skilur maður hvað móðirin gekk í gengum þegar hún var heimavið með barnið allan daginn. Fæðingarvinnan er vanmetið starf en þar kristallast ákveðið skilningsleysi og fordómar sem eru líklega ástæður lélegra launa í þessari „kvenna“stétt. Nú skil ég miklu betur hvers vegna konan var úttauguð með bauga þegar ég kom seint heim úr vinnu og rétti mér barnið með orðunum; „Nú er komið að þér“. Ég var líka dauðþreyttur eftir erfiðan dag í vinnunni og skildi ekkert hvernig á því stæði að konan gæti verið þreytt í fæðingarORLOFINU sínu? En eftir að hafa upplifað þetta sjálfur mun ég aldrei aftur vanmeta þann sem er í fæðingarorlofi . Fæðingarorlofið er langt frá því að vera bara kvöl og pína, þvert á móti er það líka ótrúlega skemmtilegt, gefandi og lærdómsríkt. Ég fæ að upplifa frábærar og ómetanlegar stundir með 10 mánaða dóttur minni , stundir sem munu aldrei koma aftur. Þær fengi ég ekki að upplifa nema vegna þess að ég fékk tækifæri til þess að vera í fæðingarorlofi. Ég fæ t.d. að sjá hana brosa, byrja að skríða, byrja að labba, leika við hana, sjá hana kanna heiminn og fæ að kynnast henni á allan hátt. Ég mundi ekki skipta á einum milljarði króna og öllum þeim skemmtilegu stundum sem ég hef átt með dóttur minni í fæðingarvinnunni okkar. Þessar stundir styrkja okkar samband og fylla mig þakklæti. Dóttir mín er yfirmaður minn í þessari vinnu og markmið mitt er að verða starfsmaður mánaðarins. Það er alveg rétt að þetta eru fátækralaun sem manni er skammtað sem vinnandi heimilisfaðir í fæðingarvinnu. Ég fer ekki í rándýra sólarlandaferð með dóttur minni á þessum launum en ég get átt jafngóðar og langtum ódýrari stundir með henni hér heima. Við getum farið í göngutúr í Nauthólsvík eða einhverri annarri íslenskri náttúruparadís. Það er nefnilega málið með þessa blessaðu peninga sem þessi heimur snýst í kringum, þeir kaupa ekki það sem skiptir mestu máli í þessu lífi. Peningar geta jú keypt skemmtun en ekki hamingju, þægilegt rúm en ekki góðan nætursvefn, lyf en ekki góða heilsu, dýrasta og flottasta hús í heimi en ekki ástríkt heimili. Við getum átt alveg yndislegar stundir með börnunum okkar án þess að það kosti of mikið, það þarf jafnvel ekki að kosta neitt. Það að fá að eiga stundir með börnunum er svo dýrmætt fyrir barnið, föðurinn og fjölskylduna að við feður megum ekki setja peningaleysi fyrir okkur, það er bara léleg afsökun. Kæru kynbræður; við vitum ekki afhverju við erum að missa nema við nýtum rétt okkur til fæðingarorlofs og megum ekki gleyma því að þessi tími með börnunum okkar kemur ekki aftur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun