Svæsið klám á Facebooksíðu Vilhjálms Bjarnasonar Jakob Bjarnar skrifar 6. júlí 2015 10:03 Viðkvæmar sálir ættu að forðast Facebooksvæði Vilhjálms Bjarnasonar. visir/frosti
Frosti Logason útvarpsmaður rak upp stór augu þegar hann sótti heim Facebooksíðu Vilhjálms Bjarnasonar þingmanns. Það sem tók á móti honum þar var verulega svæsið lesíbíuklám. Frosti, sem reyndar er ekki fæddur í gær, taldi sig vita hvers kyns var; að Vilhjálmur sé fórnarlamb svæsins víruss sem leikur um Facebook og lýsir sér þannig að klámmyndir birtast hjá saklausu fólki. Flestir sem eru á Facebook kannast við þetta hvimleiða fyrirbæri, sem lýsir sér þannig að ekki þarf annað en að einhver Facebookvinur ýti í ógáti á vafasamar myndir, þá dreifir sá klámfengnum myndum eða öðru torkennilegu og/eða óæskilegu á veggi vina sinna. Koma má í veg fyrir þess háttar uppákomu með því að breyta stillingum á Facebookreikningi sínum sem virka þannig að menn þurfi að samþykkja sérstaklega færslur á vegg sínum, sem koma frá öðrum. Frosti setur þetta hins vegar í samhengi við afstöðu Vilhjálms til frumvarps Pírata um afnám laga um guðlast. „Mér fannst svolítið sérstakt að einn þingmaður hafi sett sig á móti því að lög um guðlast yrðu afnumin og ákvað ég þess vegna að kíkja inn á facebook síðu kappans til að sjá hvort hann færði þar fram einhver rök fyrir undarlegri afstöðu sinni. Til að gera langa sögu stutta þá sit ég eftir með fleiri spurningar en svör eftir þá heimsókn,“ skrifar Frosti og birtir meðfylgjandi mynd af vegg Vilhjálms, reyndar án þess að blörra myndina. Hefur þetta vakið verulega kátínu meðal vina Frosta á Facebook.
Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira