Alvia Islandia rappaði með meðlimi Wu-Tang Kjartan Atli Kjartansson skrifar 30. júní 2015 14:06 Alvia Islandia sendir frá sér sitt fyrsta myndband í næstu viku. Mynd/Aðsend „
Hann sat á fimleikahesti að hlusta á „beats“ í símanum sínum,“ svona lýsir rapparinn Alvia Islandi upphafi atburðarásar sem endaði með því að hún og Wu-Tang meðlimurinn Cappadonna byrjuðu að rappa saman, eftir Secret Solstice tónlistarhátíðina. „Ég settist hjá honum og hann byrjaði að „freestæla“. Ég ákvað þá að vera með og byrjaði að „flowa“ með honum. Hann fílaði það vel og bað mig að rappa meira, bæði á ensku og íslensku. Þetta var allt mjög eðlilegt. Við vorum að skiptast á rímum sem við röppuðum yfir „beats“ úr símanum, eins og við værum bara í portinu á Prikinu,“ útskýrir hún enn frekar.Myndband af þeim Alviu og Cappadonna að rappa saman má sjá neðst í fréttinni. Alvia, sem hefur gert það gott í rappinu hér á landi, er að gefa út sitt fyrsta myndband næstu helgi við lag sem ber titilinn Sugar Complex. Myndbandið er tekið upp og unnið í Algera Studíói. Hún segir hina heimsfrægu meðlimi Wu-Tang hafa verið með þægilega nærveru. „Þeir voru hlýir og mjög næs. Maður fann jákvæðnina streyma frá þeim. Þegar ég byrjaði að hlusta á rapp voru þeir alltaf mestu „legendin“, ég ólst upp við að hlusta á þá. Því var gaman að hitta þá og fá að sjá frá fyrstu hendi hvað þeir eru góðir á því.“ Alvia segir ennfremur að Cappadonna hafi verið duglegur að semja á staðnum, sem á ensku kallast „freestyle“. „Hann var mjög góður!“ útskýrir hún. Alvia var ánægð með frammistöðu Wu-Tang á Secret Solstice hátíðinni, segir þá hafa verið hápunkt hátíðarinnar. Hér að neðan má sjá Alviu og Cappadonna rappa saman. #moncat7 flowin w. #cappadonna @ #SecretSolstice #wutangclan #freestyle A video posted by Mooncat (@alviaislandia) on Jun 30, 2015 at 5:12am PDT
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Sjá meira