Svona kemst maður í sama form og Pitt, Hardy, Pratt, Lee, Butler og Rocky Stefán Árni Pálsson skrifar 29. júní 2015 13:41 Svakalegir. vísir
Leikarar hafa oftar en ekki þurfta að breyta líkamlegu atgervi sínu fyrir hlutverk í kvikmyndum og mæðir oft mikið á þeim. Þetta krefst einbeitingar og mikils metnaðar. Tímaritið GQ hefur tekið saman átta hlutverk þar sem átta karlkynsleikarar hafa þurft að líta út eins og grísk guð fyrir. Tímaritið spyr Stephen Cheuk, stofnandi æfingaprógrams sem nefnist S10 en það miðar að því að koma fólki í tíu prósent líkamsfitu, hvernig best sé að snúa sér til að líta svona út. Brad Pitt í Fight Club: Magavöðvar til að deyja fyrir „Málið með magavöðva, það eru allir með þá. Maður þarf einfaldlega að vera með litla fituprósentu til að þeir sjáist,“ segir Cheuk. „Mataræðið skiptir miklu máli og alkóhól er mjög slæmt fyrir þetta svæði. Þú þarft að gera nóg af magaæfingum og þá er best að hanga uppi og lyfta báðum löppum upp í loft (sjá hér). Sprettir eru einnig frábærir fyrir magavöðvana og þá er nauðsynlegt að lyfta höndunum vel upp á meðan þú hleypur og lyfta einnig löppunum hátt upp, það þarf varla að taka það fram að þetta verður þú að gera á 100% hraða.“ Tom Hardy í Warrior: Axlir, axlir og aftur axlir„Það besta sem þú gerir fyrir axlirnar er eitthvað sem nefnist bóndaganga. Þú tekur þung lóð og gengur áfram um fjóra metra. Þú verður að passa að axlirnar haldist uppi,“ segir Cheuk. „Þú verður einnig að taka mjög þungt í réttstöðulyftu en lóðinn eiga ekki að fara alla leið niður á gólf. Því er nauðsynlegt að nota rekka til að halda þeim fyrir ofan jörðu. (sjá hér) Chris Pratt í Guardians of the Galaxy: Hvernig maður fer frá því að vera búttaður yfir í vera skorinn„Fyrir suma, eins og Chris, tekur það 12 vikur, sex æfingar á viku, til að breyta líkamanum eins og hann gerði. Þú verður að byrja á því að gera mikið erfiðum „cardio“ æfingum, síðan þarftu að lyfta lóðum með góðu skipulagi og í þriggja til fjögurra vikna prógrammi.“ Cheuk segir að sniðugt sé að finna „max“ þyngd sem þú getur tekið og unnið síðan með þyngd sem er 80% af henni. „Mataræðið skiptir öllu máli hér. Til að byrja með þarftu að taka mikið út eins og sykur, kolvetni og jafnvel ávexti.“ Bruce Lee: Vöðvar eru óþarfi ef maður kann ekki að nota þá„Ég æfði sjálfur einu sinni Wing Chun sem er tegund af bardaglist sem Bruce Lee æfði sjálfur. Hann lyfti aldrei lóðum, því þau geta hægt á þér. Það er mikill munur á því að vera með mikinn sprengjukraft eða vera mjög sterkur. Til að vera með mikinn sprengikraft verður maður að æfa hann sérstaklega. Ef þú ert að gera armbeygjur, þá gerir þú ekki bara venjulegar armbeygjur, þú vilt gera stökk armbeygjur (sjá hér) eða klapp armbeygjur (sjá hér).“ Gerard Butler í 300: Spartan æfingaprógramið„Það er til þýskt æfingaprógram (sjá hér) sem er svipað og 300 æfingaprógramið en það fékk mikla athygli þegar myndin kom út. Lykillinn er að lyfta 60% af „max“ þyngd og taka tíu endurtekningar og tíu sett.“ Paul Rudd í Ant Man: Því þú vilt í raun ekki vera með pabbalíkama„Það að vera með pabbalíkama þýðir oftast að menn eru ekki með neina vöðva. Rudd hafði sennilega aldrei lyft lóðum fyrir þessa mynd. Þarna verður maður að byrja rólega í lóðunum og vinna meira með „cardio“, til að brenna fitunni. Almennt þarf fólk fjórar vikur til að venjast því að vera að æfa. Síðan eftir fjórar vikur væri gott að færa sig yfir í svipað æfingaprógram og hér að ofan.“ Rocky: Þú þarft ekki flotta líkamsræktarstöð til að koma þér í form„Ég er með fullt af skjólstæðingum sem ferðast mikið og ég er alltaf að gefa þeim æfingaprógram sem hægt er að gera hvar sem er. Það er alltaf hægt að gera armbeygjur, magaæfingar, upphífingar og fullt af öðrum æfingum hvar sem er í heiminum.“ Edward Norton í American History X„Ef þú ert mjög horaður og ætlar þér að verða kafmassaður þá verður þú að fara tvisvar á dag í ræktina og æfa sama vöðvann í bæði skiptin. Þú tekur virkilega erfiða æfingu um morguninn, leggur þig seinnipartinn til að leyfa vöðvunum að jafna sig og tekur síðan aftur á því um kvöldið. Þú þarft að auka við matarinntökuna og innbyrða fleiri kalóríur. Það þýðir ekki að það sé í lagi að fara bara beint í rjóma og pítsu. Hrísgrjón eru vinir þínir og borðaðu mikið en samt sem áður hollt.“
Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira