Fótbolti

Leikskráin fyrir leikinn gegn Tékkum komin út

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kolbeinn Sigþórsson verður mættur á Laugardalsvöll á föstudaginn.
Kolbeinn Sigþórsson verður mættur á Laugardalsvöll á föstudaginn. vísir/afp
Ísland mætir Tékklandi í undankeppni EM 2016 í fótbolta á Laugardalsvellinum klukkan 18.45 á föstudagskvöldið.

Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið, en sigur hjá öðru hvoru þeirra færir viðkomandi nær Evrópumótinu í Frakklandi að ári liðnu.

KSÍ hefur eins og undanfarin misseri gefið út rafræna leikskrá fyrir leikinn sem má lesa hér. Leikskráin er á ISSUU skráarformi og má skoða hana í flestum tækjum.

Í leikskránni má finna áhugavert efni eins og viðtöl við leikmann og þjálfara sem og leikmannahópa og annað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×