Um öryggismál ferðamanna á hálendinu og rannsóknir Hans Kristjánsson skrifar 9. júní 2015 15:15 Svokölluðum virkum ferðamönnum fjölgar hér ár frá ári og stór hluti þeirra sækir hálendið heim í leit að ævintýrum í stórbrotnu landslagi. Þetta eru bæði innlendir og erlendir ferðamenn, sem í ríkara mæli sækja í slíkar ferðir, að vetri til ekki síður en að sumri. Einn af þeim þáttum sem mun styðja við Ísland sem áhugaverðan ferðamannastað í framtíðinni er að öryggismál, og þá sérstaklega á hálendinu, séu í viðunandi horfi. Ef horft er til skipulagsins þ.e. hverjir fara með þessi mál á hálendinu hér á landi og upplýsingagjöfina, sem þeim ber að sinna, þá er ljóst að átaks er þörf. Það þarf að veita miklu meira fé í rannsóknir og kannanir á innviðum ferðaþjónustunnar og þar á meðal öryggismálum. Þetta er mikilvægt í víðu samhengi en einkum til að: 1. Skilja mikilvægi ferðamennskunnar fyrir ákveðin svæði, land og áfangastaði. 2. Hjálpa greininni og yfirvöldum við skipulagningu á innviðum ferðamennskunnar 3. Efla ímynd og markaðsmál og skilja betur þá þætti sem þar hafa áhrif eins og öryggismál. Ferðaþjónustan og aðrar atvinnugreinar tengdar henni veltu um 275 milljörðum árið 2013 og greinin aflaði meiri gjaldeyristekna en sjávarútvegur og álframleiðslan. (Ferðamálastofa 2014). Í ljósi þessa er það afar undarlegt, svo ekki sé meira sagt, að framlag ríkisins til greinarinnar hér á landi af heildar rannsóknarfé árið 2013 hafi aðeins verið 0.32% eða 168 milljónir. Á sama tíma fékk sjávarútvegur og landbúnaður um 4 milljarða og áliðnaðurinn um 1.3 milljarða. Þarna er verulegra viðhorfsbreytinga þörf og hugarfarsbreyting ráðamanna æskileg. Umræðan og ákvarðanir ráðamanna um innviði og skipulag greinarinnar verður hvorki fugl né fiskur nema rannsóknir verði stórefldar í ferðamennsku. Brátt fara hálendisvegir hér á landi að opnast og umferð um þá mun aukast í takt við aukinn ferðamannastraum. Könnun sem gerð var á Kili sumarið 2013 staðfesti að allt of stór hópur erlendra gesta sem heimsækja Kjöl er illa upplýstur um akstur og aðra umferð á hálendinu. Hér á landi hafa verið farnar nokkrar leiðir til að koma upplýsingum til ferðamanna og nægir að benda á safetravel.is og visiticeland.is. Það er þó áhyggjuefni, samkvæmt niðurstöðum umræddrar könnunar (2013), að allt of stór hluti erlendra ferðamanna (46%) á Kili nálgaðist ekki upplýsingar um akstur eða ferðalög á hálendinu áður en til ferðarinnar kemur. Könnunin á Kili 2013 sýndi einnig að internetið er sá miðill sem flestir ferðamenn nýta sér við undirbúning ferðar. Það er því sá vettvangur sem helst skal horfa til við upplýsingagjöf. Einnig hlýtur ferðaþjónustan að gera ríka kröfu til þeirra sem reka bílaleigur hér á landi að upplýsingum um akstur á hálendinu verði án undantekninga dreift við útleigu bifreiða. Það er umhugsunarefni hvort ekki beri að skilyrða þessa ákveðnu upplýsingaskyldu rekstrarleyfi viðkomandi fyrirtækja. Það þarf einnig, með einhverjum hætti, að vekja íslendinga til umhugsunar um öryggismál varðandi ferðalög á hálendinu. Ef marka má könnunina sem gerð var á Kili 2013 þá er drjúgur hluti ferðamanna á hálendinu Íslendingar (26%) og þótt flestir þeirra telji sig vana akstri á malarvegum og á vegslóðum þá eru fjallgöngur og ferðalög um hálendið jafn hættulegt þeim og erlendum gestum. Þess vegna þarf sérstaklega að hugsa til þessa ákveðna markhóps. Miðlun upplýsinga gegnum menntakerfið, netið og aðra miðla er ein leið og hægt er að sjá fyrir sér átak svipað og gert er í umferðarmálum og í baráttunni við vímuefnin. Framhaldsskólar landsins gætu gengt mikilvægu hlutverki í þessu efni. Öryggismál á hálendinu snúa einnig að ferðamanninum sjálfum. Vilja hans og getu til að afla sér upplýsinga og þar skiptir reynsla líka máli. Það verða alltaf hrikaleg fjöll sem freista, það verða alltaf fossandi ár sem menn þurfa að komast yfir og það verða áfram vegir í misjöfnu ásigkomulagi sem hlykkjast eftir hálendinu með varhugaverðum beygjum og hæðum. Eina færa leiðin til að auka öryggi ferðamanna á hálendinu er fræðsla, markviss upplýsingagjöf og strangar öryggiskröfur ferðaþjónustufyrirtækja sem skipuleggja ferðir inn á hálendið og starfa þar. Að þeirri vinnu koma bæði stjórnvöld, sveitarstjórnir og fulltrúar atvinnugreinarinnar. Allar ákvarðanir í þessu svo brýna verkefni verður að byggja á fyrirliggjandi rannsóknum eða könnunum um hegðun ferðamannanna sjálfra. Afþreying ferðamanna á hálendi Íslands mun, þegar öllu er á botnin hvolft, afmarkast af landslagsgerðinni og ferðamáta ferðamannana sjálfra. Ef með skipulögðum hætti er hægt að flokka og ramma inn alla þá þætti sem máli skipta við skipulag öryggismála á hálendinu þá verður einfaldara að bregðast við auknum ferðamannastraumi inn á hálendi Íslands. Hegðun ferðamannanna er næstum eins margbreytileg og þeir eru margir. Mannslíf eru dýrmæt og neikvæð umfjöllun um hættur hálendisins getur haft daprar afleiðingar fyrir ferðaþjónustuna hér á landi. Hálendi Íslands er uppspretta ævintýra ferðamennsku (adventure tourism). Í slíkri ferðamennsku er öryggisþátturinn mikilvægastur svo að ferðalagið verði ánægjulegt og þörfum og væntingum ferðamannanna fullnægt. Sjálfbærni og áframhaldandi vöxtur þessarar nýju gerðar ferðamennsku útheimtir að öryggismál verði sett í forgang. Skortur á faglegri umræðu byggða á fyrirliggjandi könnunum eða rannsóknum um öryggismál ferðamanna á hálendi Íslands mun jafnvel verða til þess að ferðaþjónustan lendir í ógöngum í komandi framtíð. Eflum rannsóknir í ferðamennsku til jafns við aðrar atvinnugreinar í landinu! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir Skoðun Partí í Dúfnahólum 10 Þórlindur Kjartansson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson Skoðun Skoðun Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson Skoðun
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson Skoðun