Samfélag án aðgreiningar Páll Valur Björnsson skrifar 5. maí 2015 10:01 Í lögum um grunnskóla segir að nemendur eigi rétt á að komið sé til móts við námsþarfir þeirra í almennum grunnskóla án aðgreiningar, án tillits til líkamlegs eða andlegs atgervis.Að mínu mati er þetta mjög góð stefna. Engin tvö börn eru eins. Skólinn á að laga sig að því og að þörfum þeirra. Öll börn eiga rétt á að fá að vera með öðrum börnum í námi og leik. Ekkert barn á að útiloka eða beita mismunun. Ég held líka að þessi stefna um skóla án aðgreiningar sé ekki bara mjög góð fyrir þau börn sem þurfa á sérstökum stuðningi að halda. Ég er jafnsannfærður um að hún er ekki síður góð fyrir þau börn sem ekki þurfa á sérstökum stuðningi að halda. Það er nefnilega svo þroskandi að kynnast alls konar fólki og mismunandi aðstæðum þess, læra að setja sig í spor annarra og taka tillit til þeirra. Ef börnin okkar læra það vel njóta þau sín öll miklu betur í samfélagi sem byggist á virðingu fyrir öðru fólki, tækifærum fyrir alla, tillitssemi og málamiðlunum. Og ég held að við viljum öll að börnin okkar tileinki sér þá hæfni og það hugarfar.Betra samfélagEf við gerum þetta almennilega verður samfélagið okkar ekki bara manneskjulegra og mannlífið fjölbreyttara og skemmtilegra. Við förum þá líka mun síður á mis við þann mikla mannauð sem býr í öllum þeim fjölmörgu börnum sem þurfa á sérstökum stuðningi að halda í námi sínu, sum tímabundið en önnur lengur. Þannig fá þau tækifæri til að vera með og leggja sitt af mörkum eftir getu hvers og eins. Skóli án aðgreiningar sem er vel búið að stórbætir því ekki bara lífsgæði mjög margra barna og aðstandenda þeirra. Hann eykur einnig mikið líkur á að börnin nái árangri í náminu og finni sér störf við hæfi þegar þau verða fullorðin. Það er því til mjög mikils að vinna. Það er afar mikil sóun að láta marga verða óvirka í samfélaginu og lenda jafnvel út á jaðri þess og þurfa þess vegna á miklum og kostnaðarsömum stuðningi að halda, jafnvel ævina á enda.Hver stöndum við okkurEn hvernig búum við að skólunum sem eiga að vera án aðgreiningar þannig að börnin okkar fái notið þeirra tækifæra sem í því felast og geti tekið virkan þátt í samfélagi án mismununar? Við stöndum okkur alls ekki nógu vel í því, finnst mér. - Og hvers vegna finnst mér það? Vegna þess að við leggjum allt of lítið í að greina þarfir þeirra mörgu barna sem þurfa á stuðningi að halda. Og það þó að þær greiningar séu augljóslega forsenda þess að skólarnir og kennararnir geti vitað hverjar þarfir þeirra eru. Er ekki augljóst að þannig geta þeir miklu betur sniðið kennsluna að þörfum hvers og eins barns og veitt þeim þann stuðning sem mestum árangri skilar. Biðlistar og biðtími eftir nauðsynlegum greiningum fyrir börn sem eru með einhvers konar raskanir vegna fötlunar, ofvirkni og/eða athyglisbrests (ADHD), einhverfu eða af geðrænum ástæðum eru of allt of langir. Börn með talmein og málþroskaraskanir eru mjög mörg og það spillir lífsgæðum þeirra og möguleikum til náms og þar með tækifæra í lífinu ef þau fá ekki viðeigandi greiningar og þjálfun þegar þau eru ung. Þjónusta við þessi börn er allt of ómarkviss og mismunandi milli sveitarfélaga og þjónustusvæða og svo er oft kostnaðarsamt að sækja hana sem leiðir augljóslega til að börnunum er mismunað vegna fjárhagsstöðu foreldra eða félagslegra aðstæðna.Aðstæður kennaraEndurmenntun er skorin við nögl fyrir kennara um hvernig megi koma auga á ýmis konar raskanir hjá börnum og hvernig árangursríkast er að mæta þörfum þeirra í námi og félagslega. Og þá segja talsmenn samtaka sem vinna með hagsmuni barna að leiðarljósi að ekki sé lögð mikil áhersla á þá þekkingu og þjálfun í skyldunámi fyrir alla kennaranema sem stunda nám í kennaraskólum sem ríkið rekur. Þetta sama ríki hefur sett stefnuna góðu um skóla án aðgreiningar sem gerir ráð fyrir því að börnum með sérþarfir sé kennt með öðrum börnum og í sömu skólastofum og af öllum kennurum. Er þetta ásættanlegt? - Er nægilega vel að því staðið af hálfu menntamálayfirvalda að hrinda stefnu um skóla án aðgreiningar í framkvæmd og búa þannig að skólum og kennurum að þeir geti náð þeim mikilvægu markmiðum sem að er stefnt? Nei, því miður svo er alls ekki. - Og þetta er að sjálfsögðu langt frá því að vera ásættanlegt. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðannaÍsland fullgilti Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 1992 og hann hefur verið tekinn í íslensk lög. Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna sem hefur eftirlit með því hvernig aðildarríki að sáttmálanum uppfylla skyldur sínar hefur gert alvarlegar athugasemdir við hversu langir biðlistar og biðtími er á Íslandi eftir greiningum fyrir börn með ofvirkni og athyglisbrest (ADHD) og aðrar slíkar raskanir. Finnst okkur viðunandi að þetta sé svona í okkar ríka landi og að ekki hafi verið úr þessu bætt þó að þetta stangist á við skyldur okkar samkvæmt Barnasáttmálanum? Eigum við ekki að leyfa Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna að einbeita sér að því að bæta kjör og stöðu barna í mjög fátækum löndum þar sem fjárskortur er raunverulegt vandamál og hindrun. Hjá okkur er þetta bara spurning um vilja stjórnvalda og forgangsröðun.Höfundur er þingmaður Bjartrar framtíðar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre Skoðun Skoðun Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar