Guðjón Valur frábær í fyrri hálfleik og Barcelona vann útileikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2015 19:53 Guðjón Valur Sigurðsson. Vísir/EPA
Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Barcelona eru í ágætum málum eftir fyrri leik sinn við króatíska liðið RK Zagreb í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta. Barcelona vann þá tveggja marka sigur á útivelli í Zagreb í dag, 25-23, og ætti að geta tryggt sér sæti í undanúrslitunum á heimavelli sínum. Barcelona hefði getað unnið mun stærri sigur því liðið var fjórum mörkum yfir þegar sex mínútur voru eftir af leiknum. Zagreb-liðið minnkaði muninn niður í eitt mark og fékk tækifæri til að jafna metin en fyrirliðinn Víctor Tomás innsiglaði sigur Börsunga. Guðjón Valur skoraði fjögur mörk fyrir Barcelona en Nikola Karabatic var markahæstur með sex mörk og þeir Kiril Lazarov og Tomás skoruðu báðir fimm mörk. Fjögur mörk Kiril Lazarov komu af vítalínunni. Guðjón Valur átti frábæran fyrri hálfleik þar sem hann nýtti öll fjögur skotin sín en tvö þeirra komu úr hraðaupphlaupum og tvö eftir að hann hafði leyst inn á línu. Guðjón Valur fiskaði einnig tvö víti en aðeins annað þeirra skilaði marki. Siarhei Rutenka klikkaði á fyrra vítinu sem Guðjón Valur fiskaði en Kiril Lazarov skoraði úr hinu. Guðjón Valur kom Barcelona í fyrsta sinn fimm mörkum yfir, 13-8, þegar hann skoraði sitt fjórða mark þegar tvær mínútur voru til hálfleiks. Nikola Karabatic skoraði einnig fjögur mörk í fyrri hálfleiknum og Barcelona var 14-10 yfir eftir hann. Danijel Saric varði mjög vel í markinu í fyrri hálfleiknum. Barcelona var áfram með 3-4 marka forskot í seinni hálfleiknum en Guðjón Valur klikkaði á eina skoti sínu í honum. Barcelona var síðan 24-20 yfir þegar sex mínútur voru eftir en þá komu þrjú króatísk mörk í röð. Króatarnir fengu tvö tækifæri til að jafna en Börsungar héldu út og náðu að landa mikilvægum sigri á erfiðum útivelli.
Handbolti Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Sjá meira