Sport

Metár hjá Vonn

Lindsey Vonn fagnar með nýjasta bikarinn.
Lindsey Vonn fagnar með nýjasta bikarinn. vísir/getty
Skíðakonan magnaða, Lindsey Vonn, er búinn að tryggja sér heimsbikartitilinn í bruni kvenna í sjöunda sinn.

Það er met sem hún deilir með austurrísku stúlkunni Annamarie Moser-Proell.

Þessi þrítuga skíðakona frá Bandaríkjunum er búin að vinna 66 heimsbikarmót á ferlinum. Hún missti af síðasta tímabili vegna meiðsla en hefur komið til baka með stæl.

„Þetta er ótrúlegt. Að koma til baka í ár, vinna titilinn aftur og eiga ótrúlegt skiptir mig svo miklu máli," sagði Vonn.

Hún hefur tvisvar meiðst alvarlega á hné en er þrátt fyrir það sigursælasta skíðakona allra tíma í alpagreinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×