Lífið

Seltirningur og Reykvíkingur létu salinn fá gæsahúð

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ívar og Magnús sungu lag með Sverri Bergmann.
Ívar og Magnús sungu lag með Sverri Bergmann. vísir/andri marinó
Magnús Hafdal, 26 ára frá Reykjavík, og Ívar Þórir Daníelsson, 28 ára Seltirningur, stigu síðastir á svið í Ísland got Talent þætti kvöldsins. Að eigin sögn hafa þeir verið að dútla saman í tónlist undanfarið hálft ár. Fyrir valinu varð lagið Ég fer ekki neitt með Sverri Bergmann. Magnús lék á gítar og Ívar söng.

Flutningur vinanna var nær óaðfinnanlegur en Bubbi sagði að þeir hefðu verið níutíu prósent. Aðrir dómarar tóku aðeins sterkar til orða og sögðu að þetta hefði verið frábært og glæsilegt.

Upptöku af flutningnum má sjá hér fyrir neðan.






Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×