Innlent

Víkingasveitin vopnast vikulega

Bjarki Ármannsson skrifar
Sérsveitin á æfingu.
Sérsveitin á æfingu. Vísir
Sérsveit ríkislögreglustjóra hefur vopnast rúmlega einu sinni í viku að meðaltali síðustu fjögur ár. Á sama tíma hefur hin almenna lögregla vopnast á um það bil tveggja mánaða fresti.

Þetta kemur fram í nýju hættumati greiningardeildar ríkislögreglustjóra á hryðjuverkum og öðrum stórfelldum árásum. Í hættumatinu kemur fram að hættustig, eða vástig, vegna hryðjuverkaógnar á Íslandi hefur verið hækkað og er nú „í meðallagi.“

Í matinu kemur einnig fram að sérsveitin, eina vopnaða lögreglusveit landsins, hefur alls vopnast 227 sinnum á tímabilinu 1. janúar 2011 til 13. janúar 2015.  Segir að í öllum tilvikum hafi þótt nauðsynlegt að beita vopnuðum liðsafla vegna upplýsinga um að í viðkomandi tilvikum væru vopnaðir menn á ferð.

Sjá einnig: Vitneskja um „hættulega einstaklinga“ hér á landi

Oftast vopnaðist sérsveitin árið 2013, eða alls í 71 skipti. Almenn lögregla hefur hins vegar aldrei vopnast oftar en átta sinnum á ári síðastliðin fjögur ár. Alls hefur lögregla vopnast 29 sinnum á bilinu 1. janúar 2011 til 30. september 2014.

Í nýja hættumatinu er lagt til að hugað verði að lagasetningu um auknar rannsóknarheimildir lögreglu vegna rannsókna hryðjuverkabrota.  Almennt sé talið að ekki sé hægt að útiloka hættu á hryðjuverkum á Íslandi.


Tengdar fréttir

Engar frekari rannsóknarheimildir lögreglu til umræðu

Ásgeir Karlsson, yfirmaður greiningardeildar ríkislögreglustjóra, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að ekki hefði verið talið tilefni til að hækka vástig hér á landi í kjölfar hryðjuverkanna í París.

Óþarft að hækka vástig

Orð Ásmundar Friðrikssonar alþingismanns um könnun á bakgrunni íslenskra múslima vekja hörð viðbrögð. Hættustig vegna hryðjuverkaógnar er metið lágt á Íslandi.

Þörf á meiri þjálfun í meðferð skotvopna

Norskir lögreglunemar fá um 100 kennslustundir í meðferð skotvopna. Á Íslandi hafa kennslustundirnar verið 15 í grunnnámi lögreglunema. Skólastjóri Lögregluskóla ríkisins vill auka þjálfun verðandi lögreglumanna í notkun skotvopna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×