Starf bráðahjúkrunarfræðings Hrönn Stefánsdóttir skrifar 17. júní 2015 07:00 Líf fólks getur breyst á einni mínútu. Ég er hjúkrunarfræðingur á Bráðamóttökunni í Fossvogi og ef þú lendir í slysi eða alvarlegum sjúkdómi þá gæti það vel verið svo að ég myndi taka á móti þér. Mig langar til þess að kynna fyrir þér, ágæti lesandi, hlutverk hjúkrunarfræðinga á Bráðamóttökunni. Ég hef alltaf verið stolt af starfi mínu. Ég hef komið heim til mín mjög sátt með dagsverkið og stolt af því að vera hluti af þessu frábæra teymi sem starfar á Bráðamóttökunni. Það eru kannski ekki margir sem leiða hugann að starfi hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingar eru órjúfanlegur hlekkur í heilbrigðisþjónustunni. Af rúmlega 4.500 starfsmönnum Landspítala-Háskólasjúkrahúss eru um 1.500 hjúkrunarfræðingar. Til þess að starfa sem hjúkrunarfræðingur á Bráðamóttökunni þurfum við að hafa lokið a.m.k. 4 ára háskólanámi í hjúkrun frá háskólum eins og Háskóla Íslands eða Háskólanum á Akureyri. Margir hjúkrunarfræðingar hafa ýmsa sérhæfingu s.s. eins og meistaranám, diplómanám og doktorsnám. Þar að auki þurfum við að vera í stöðugri símenntun. Það felur í sér að sitja fjölda námskeiða ár hvert. Sækja rýnifundi í hverri viku. Þar að auki komum við saman nokkrum sinnum á ári á stórum deildarfundum þar sem við förum yfir áherslur á hin ýmsu málefni sem tengjast starfi okkar og fáum fræðslu varðandi nýjungar og verklag í starfi.Búa yfir mikilli þekkingu Hjúkrunarfræðingar á Bráðamóttökunni vita aldrei hvernig dagurinn á eftir að þróast. Þeir taka á móti sjúklingum bæði í gegnum biðstofuna og við móttöku á sjúkrabílum og þyrlum. Hjúkrunarfræðingar forgangsraða sjúklingum eftir alvarleika sjúkdóma eða slysa. Þeir þurfa því að búa yfir mikilli þekkingu og „klínísku nefi“ til þess að vita hvenær eða hvort það þurfi að hefja meðferð strax, innan 10 mínútna eða hvort sjúklingur geti beðið lengur eftir skoðun læknis. Vaktstjórar á Bráðamóttökunni eru hjúkrunarfræðingar. Vaktstjóri á Bráðamóttöku er tengiliður Bráðamóttökunnar við aðra viðbragðsaðila. Á Bráðamóttökuna kemur margbreytilegur sjúklingahópur. Það gerir kröfu til okkar að við þurfum að hafa mikla þekkingu á öllum líffærakerfum líkamans, starfsemi hans og þekkja niðurstöður rannsókna og myndgreininga svo fátt eitt sé nefnt. Sá sjúklingahópur sem við sinnum eru lungnasjúklingar sem eru margir súrefnisháðir, hjartasjúklingar, krabbameinssjúklingar, aldraðir, einstaklingar sem orðið hafa fyrir alvarlegum eða minniháttar slysum, einstaklingi sem hefur lent í áfalli, einstaklingi sem hefur verið nauðgað, einstaklingi í sjálfsvígshugleiðingum eða í alvarlegri andlegri vanlíðan og svona mætti lengi telja. Það er því að öllum líkindum hjúkrunarfræðingur sem tekur á móti þér ef þú lendir í einhverju ofangreindu. Við erum ekki að telja þetta eftir okkur, flest okkar elska starfið sitt, við völdum þetta starf vegna áhuga á manneskjunni, heilsu og sjúkdómum. Við viljum að starf okkar sé metið með hliðsjón af tvennu, annars vegar menntun og hins vegar ábyrgð.Starfsfólkið er grunnurinn Ég hef sjálf búið og starfað í öðru landi. Ég starfaði sem hjúkrunarfræðingur í 3 ár í Bandaríkjunum og kom heim árið 2011. Í Bandaríkjunum voru launin helmingi hærri fyrir styttri vinnuviku. Ég var vel metin. Þar þótti aðdáunarvert að allir hjúkrunarfræðingar væru með Bachelor's Degree á Íslandi. Það er ekki algilt þar. Þegar ég flutti aftur til Íslands fylltist ég stolti yfir því að sjá hversu mikill metnaður er innan minnar fagstéttar. Hjúkrunarfræðingar á Íslandi eru með mikinn metnað í starfi. Ég veit að marga hjúkrunarfræðinga eins og mig langar til að byggja upp spítala sem er með því besta sem þekkist. Heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga er ekki gott eins og staðan er í dag. Þar nægir að nefna sögur sem margar hafa ratað í fjölmiðla s.s. eins og sögur um ónóga meðferð, um bilaðan tækjabúnað og svo má lengi telja. Grunnurinn að uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Íslandi er starfsfólkið. Ef fólk sér ekki fram á að geta veitt sér mannsæmandi lífsviðurværi þá liggur beinast við að leita starfa í öðrum geirum eða í öðrum löndum. Íslenskir hjúkrunarfræðingar eru vel menntaður starfskraftur sem getur með auðveldum hætti starfað í öðrum löndum. Því miður þá sé ég mig kannski knúna til að fara aftur af landi brott, þar sem að ég þarf að hlúa að minni fjölskyldu. En það sem við höfum búið að síðustu ár er mannafli, flott fólk með góða og mikilvæga þekkingu, ástríðu fyrir starfi sínu og metnað. Þetta fólk megum við ekki missa. Þróunin er sú í öðrum löndum að fólk er farið að velja sér annan vettvang að atvinnu, það sjáum við í nágrannalöndum okkar. Það er þróun sem við verðum að koma í veg fyrir, það yrði líka mjög dýrt fyrir íslenska ríkið að kaupa aðfluttan mannafla til að sinna þessum störfum. Ég virkilega vona að ráðamenn þessa lands sjái að það þurfi að setja heilbrigðiskerfið og starfsmenn þess í forgrunn og byggja upp þessa rjúkandi rúst sem það er því miður orðið. Það er nokkuð borðleggjandi að hjúkrunarfræðingar munu leita til annarra landa sé einungis horft til þess endurgjalds (launa) sem ríkið er tilbúið að greiða fyrir þá fjárfestingu sem nám í hjúkrunarfræði er. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Úr vörn í sókn: Reksturinn aldrei sterkari í Hveragerði Lárus Jónsson,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Af svifryki, strætó og sjálfstæðum krökkum Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gerum Fjarðabyggð spennandi fyrir ungt fólk Anna Þórhildur Kristmundsdóttir,Júlíus Óli Jacobsen,Magnea María Jónudóttir,Þórunn Ólafsdóttir skrifar Skoðun Af hverju skiptir máli að kjósa í Garðabæ? Bryndís Matthíasdóttir skrifar Skoðun Allir íbúar Kópavogs skipta máli Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Our home, our vote, our future Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Er borgarlínan bókstafsins virði? Ævar Örn Jóhannsson skrifar Skoðun Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Af hverju flytjum við fólkið, í stað þjónustunnar? Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Traustur fjárhagur er ekki tilviljun Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller skrifar Skoðun Enginn á að standa einn Joanna (Asia) Mrowiec skrifar Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Sala á opinberum eignum Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Valdimar Víðisson hlustar: Það sem ég lærði af Coda Terminal Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Vörumst vinstri stjórn og eftirlíkingar í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar Skoðun Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar Skoðun Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir,Viktor Orri Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson,Hákon Skúlason skrifar Skoðun Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun
Skoðun Úr vörn í sókn: Reksturinn aldrei sterkari í Hveragerði Lárus Jónsson,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Gerum Fjarðabyggð spennandi fyrir ungt fólk Anna Þórhildur Kristmundsdóttir,Júlíus Óli Jacobsen,Magnea María Jónudóttir,Þórunn Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar
Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun