Er þetta nýja kærastan hans Cristiano Ronaldo? Kjartan Atli Kjartansson skrifar 25. maí 2015 15:21 Ronaldo er sagður vera kominn í nýtt samband.
Knattspyrnukappinn portúgalski, Cristiano Ronaldo, er sagður vera kominn með nýja ástkonu. Hún er ítölsk og heitir Alessia Tedeschi. Hún er þekkt fyrirsæta í heimalandinu og hefur nafn hennar einnig ratað í þarlenda fjölmiðla vegna þess að hún er fyrrum tengdadóttir Silvio Berlusconi, fyrrum forsætisráðherra. Tedeschi var gestur Ronaldo á leik Real Madrid og Juventus í meistaradeildinni. Fjölmiðlar ytra greindu einnig frá því að parið hafði eytt nóttinni saman. Tedeschi hefur tekið þátt í fegurðarsamkeppnum og komst í úrslit Ungfrú Ítalíu árið 2011. Ronaldo var áður með Irina Shayk, rússnesku fyrirsætunni. Hún mun hafa sparkað knattspyrnugoðinu þegar komst upp að hann hafði ítrekað sent skilaboð til annarra kvenna. Upp komst um athæfi Ronaldo á gamlárskvöld síðastliðið og viðurkenndi hann loks fyrir kærustunni þáverandi að hafa sent konum frá sex löndum skilaboð og daðrað við þær. Þau voru saman í fimm ár. Ronaldo hefur síðan þá verið orðaður við nokkrar konur. Hann var sagður vera með spænsku sjónvarpskonunni Lucia Villalon og mexíkósku sjónvarpskonunni Vanessa Huppenkothen. Þær neituðu því báðar og seinna kom í ljós að Huppenkothen var í sambandi með liðsfélaga Ronaldo, mexíkóska framherjanum Javier Hernandez. Irina hefur einnig leitað á önnur mið, eftir sambandið við Ronaldo. Hún er nú með leikaranum góðkunna Bradley Cooper. Hér má sjá hina ítölsku Tedeschi, sem birti þessa mynd af sér á Instagram, en segist hún vera stödd fyrir utan Santiago Bernabeu, heimavöll Real Madrid, þar sem Ronaldo leikur. Let's go to the #stadium #bernabeu #Madrid #champions #realmadrid vs #juventus ⚽ A photo posted by Alessia Tedeschi (@alessiatedeschi91) on May 13, 2015 at 10:14am PDT
Mest lesið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Lífið Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ Lífið Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Lífið Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni Lífið „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Potter-stjarna harmar hvernig fór með Rowling Bíó og sjónvarp Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Fleiri fréttir Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Sjá meira