Innlent

Fasteignagjöldin sliga rekstur Hörpu

Heimir Már Pétursson skrifar
Fasteignagjöld tónlistarhússins Hörpu verða tæp fjörutíu prósent af tekjum hússins standi dómur Héraðsdóms Reykjavíkur. Framkvæmdastjóri hússins segir tæplega fjögur hundruð milljónir í fasteignagjöldum sliga rekstur hússins en gjöldin ættu að vera helmingi minni að hans mati.

Harpa krafðist þess fyrir héraðsdómi að úrskurður yfirfasteignaskattsnefndar um fasteignagjöld Hörpu frá vorinu 2012 yrði ógiltur og lagði fram nýtt fasteignamat á húsinu ásamt fleiri gögnum því til stuðnings. Nefndin metur húsið á sautján milljarða og eru fasteignagjöld innheimt samkvæmt því, en Harpa telur verðmæti hússins ekki vera nema sjö milljarða.

Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hörpu, segir fasteignagjöldin sliga reksturinn.

„Eigintekjur Hörpu hafa aukist mjög undanfarin ár og losa nú um þúsund milljónir. En tæplega fjögur hundruð af þeim fara í fasteignagjöldin. Það sér hver maður að reksturinn getur ekki borið þetta,“ segir Halldór.

Stjórn Hörpu eigi eftir að taka ákvörðun um hvort dómi héraðsdóms verði vísað til Hæstaréttar. Ljóst sé að reksturinn standi ekki undir þessum gjöldum. Ef fallist væri á rök Hörpu í málinu yrðu fasteignagjöld hússins um tvö hundruð milljónir í stað tæplega fjögur hundruð milljóna.

„Harpa aflar sér tekna með útleigu rétt eins og stórar verslunarmiðstöðvar eða Leifsstöð. Okkur finnst þess vegna einkennilegt að við séum að borga margfalt hærri fasteignagjöld á fermetra en þessir staðir,“ segir Halldór Guðmundsson.


Tengdar fréttir

Þriðjungur rekstrartekna Hörpu fer í fasteignagjöld

Harpa mun þurfa að greiða rúmlega 380 milljónir í fasteignagjöld eftir dómsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur. Borgarstjóri Reykjavíkur segir að beðið verði eftir ákvörðun stjórnar Hörpu um áfrýjun áður en ákveðið verði hver næstu skref eru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×