„Það er í lagi að finnast barnið sitt stundum leiðinlegt og finnast móðurhlutverkið leiðinlegt“ Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 10. ágúst 2015 16:00 Sara hvetur aðrar mæður til að taka þátt í #égerekkiein. Vísir/Sara „
Það er í lagi að finnast barnið sitt stundum leiðinlegt og finnast móðurhlutverkið leiðinlegt. Því við vitum alveg að í heildina finnst okkur hvorugt vera leiðinlegt, þó að það virðist vera þannig á vissum augnablikum. Það gerir okkur ekki að slæmum mæðrum, það gerir okkur mennsk,“ skrifar Sara Hlín Hilmarsdóttir á síðuna Fagurkerar en hún ýtti úr vör átakinu #égerekkiein í dag. Átakið snýst um að eyða staðalímyndum um móðurhlutverkið og horfast í augu við að móðurhlutverkið getur verið erfitt og leiðinlegt á tímum. Færslu Söru má lesa í heild sinni hér. „Um daginn skrifaði ég smá pistil um sumarfrí leikskólanna. Þar tjáði ég mig um að eins yndislegt og það væri að eiga barn og að fá að vera í fríi með honum að þá hlakkaði ég virkilega til þess þegar leikskólinn byrjaði aftur. Margar voru sammála mér, en ég fékk líka allskonar skít yfir mig. Komment eins og „Það er ábyrgð að eignast barn!“, „Geturðu ekki einu sinni eytt fjórum vikum með syni þínum?“, „Það er ljótt að segja svona!“ og margt fleira. Margir voru mjög sjokkeraðir yfir því að ég leyfði mér að segja að mér fyndist ekki alltaf skemmtilegt að vera með syni mínum og að ég væri orðin þreytt á því að hafa stanslaust ofan af fyrir honum í fríinu,“ skrifar Sara. Hún segist elska son sinn meira en allt annað og að hún njóti að verja tíma með honum.Börn geta verið miklir gleðigjafar en það er ekki þar með sagt að foreldrum og börnum komi öllum stundum vel saman.Vísir/Getty„En stundum nýt ég þess ekki. Stundum á ég slæman dag og stundum á hann slæma daga. Stundum er þessi yndislegi litli strákur, sem mér finnst algjörlega fullkominn, bara frekar leiðinlegur. Stundum langar mig bara að vera gera eitthvað allt annað en að vera í bílaleik, eða úti á róló eða hvað sem það er. Og það er allt í lagi!“Orðin þreytt á sykurhúðaðri ímynd mömmunnar Sara birti því mynd af sér þar sem hún heldur uppi skilti sem á stendur: „Takk fyrir að segja mér að það sé erfitt að elska einhvern sem öskrar stanslaust á mann.“ Undir textanum er myllumerkið #égerekkiein. Hún vill hvetja mæður til þess að deila góðum ráðum sem þær hafa fengið eða vildu hafa fengið með myllumerkinu. Þannig vonast hún til að hægt verði að uppræta skömmina sem mæður finna fyrir þegar þær upplifa tilfinningar gagnvart barninu sem samkvæmt samfélaginu teljast „ljótar.“ „Ég er orðin þreytt á þessari sykurhúðuðu ímynd sem er uppi í samfélaginu. Ég er þreytt á því að það megi ekki kvarta yfir móðurhlutverkinu. Það ER krefjandi að vera foreldri og við eigum að geta talað um tilfinningar okkar án þess að vera dæmd fyrir þær. Við vissum öll hver ábyrgðin væri við það að eignast barn og ég er nokkuð viss um að engin okkar væri til í að taka þá ákvörðun tilbaka að eiga börnin okkar. En það þýðir ekki að við megum ekki tala um að stundum er þetta bara mjög þung ábyrgð að bera og stundum bara ekkert skemmtileg. Ég fékk sjálf slæmt fæðingarþunglyndi og veit það manna best hvað það er vont að „mega“ ekki ströggla. Að finnast tilfinningar sínar ekki eiga rétt á sér og mega ekki tala um þær af því samkvæmt samfélaginu eru þær „ljótar“. Að skammast sín fyrir þessar tilfinningar sínar.“
Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Lífið samstarf Ocasio-Cortez á lausu Lífið Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Lífið samstarf Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Sjá meira