Netverjar eru trylltir í að rokka á sokkunum GUÐRÚN ANSNES skrifar 5. júní 2015 12:00 Sigrún ásamt Loka, en hann er ein helsta ástæða hás hlutfalls ósamstæðra sokka í skúffum heimilisins. „
Ég er í sjokki, og er eiginlega búin að vera óvinnufær í dag,“ segir Sigrún Guðlaugardóttir, en hún er sú sem setti af stað viðburðinn Rokkum á sokkum, sem farið hefur sem eldur um sinu á Facebook. Hafa nú á fjórða þúsund manns staðfest þátttöku sína. Að rokka á sokkum er sumsé framtak þar sem fjölbreytileikanum er fagnað, hverjum einum og einasta einstakling. Það eina sem þarf til að vera með og sýna stuðning í verki er að klæðast ósamstæðum sokkum þann 12. júní næstkomandi og jafnvel skella mynd á Facebook. Eru sokkarnir því býsna gildishlaðnir, en þeir tákna hve ólík við erum en samt jöfn. „Hugmyndin spratt fram í eldhúsinu hjá mér á miðvikudagskvöldið þegar frænka mín var í heimsókn og ég í ósamstæðum sokkum og þá fór frænka mín að tala um átak sem var í gangi í Svíþjóð fyrir skemmstu,“ útskýrir Sigrún. Þar tóku þúsundir Svía við sér og fjöldi þjóðþekktra einstaklinga og varð sænska útgáfan af Rokkað á sokkum ansi stórt fyrirbæri þar í landi. „Ég átti náttúrulega engan veginn von á að þetta myndi fara svona á flug, ég var meira að hugsa bara um skólann sem ég vinn í eða eitthvað álíka,“ segir Sigrún og er augljóslega frá sér numin. „Snilldin við þetta er að það kostar ekki neitt að sýna stuðninginn,“ segir Sigrún og bætir við flissandi: „Ætli ég verði ekki að biðja OCD-sjúklinga fyrirfram afsökunar.“
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira