Siðmennt og samkynhneigð Jóhann Björnsson skrifar 5. júní 2015 08:00 Er ekki örugglega árið 2015 núna? Annað mætti ætla þegar litið er yfir sviðið hvað varðar málefni samkynhneigðra og hinsegin fólks. Breski sjónvarpsmaðurinn Stephen Fry, sem er félagi í British Humanist Association, systursamtökum Siðmenntar, gerði athyglisverða sjónvarpsþætti sem sýndir voru sl. vetur. Í þáttunum sýndi hann frá ferðum sínum og samskiptum við fólk víða um heim sem hatast út í samkynhneigða og hinsegin fólk. Reyndi hann að fá fólk til að rökstyðja afstöðu sína en sá rökstuðningur var enginn. Írar gengu að kjörborðinu nýverið og kusu um hvort tveir sjálfráða einstaklingar mættu ganga í hjónaband, eins og það komi öðrum eitthvað við hverjir ganga í hjónaband. Frá Kaliforníu bárust þær fregnir fyrir skömmu að lögfræðingurinn Matt McLaughlin teldi samkynhneigða réttdræpa og reynir hann að fá atkvæðagreiðslu um málið í fylkinu. Á Íslandi er afstaðan ekki þroskaðri en svo að sumir verða arfavitlausir við það eitt að grunnskólanemar fái markvissa fræðslu um margbreytileika mannlífsins. Stærsti trúarsöfnuður landsins er enn að vandræðast með málið. Mikið er hægt að flækja lífið. Siðmennt hefur alla tíð, í þau 25 ár sem félagið hefur starfað, staðið með réttindabaráttu samkynhneigðra og hinsegin fólks. Til marks um þann stuðning hlutu Samtökin 78 húmanistaviðurkenningu Siðmenntar árið 2005. Þekktir baráttumenn fyrir réttindum samkynhneigðra, þeir Hörður Torfason og Páll Óskar Hjálmtýsson, hafa einnig hlotið þá viðurkenningu. Undanfarin ár hafa athafnarstjórar Siðmenntar gefið fjölda einstaklinga saman í hjónaband. Skiptir engu máli hvort einstaklingar sem gifta sig hjá Siðmennt eru samkynhneigðir, gagnkynhneigðir eða tvíkynhneigðir. Kynhneigðin kemur okkur ekkert við, það er ástin sem ræður og hamingja einstaklinganna sem leita til Siðmenntar. Athafnarstjórar Siðmenntar hafa ekki frelsi til fordóma þegar kemur að því að gefa fólk saman í hjónaband. Siðmennt mun halda áfram að standa vaktina þegar kemur að mannréttindum og mannvirðingu. Verið endilega með okkur á þeirri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Sjá meira
Er ekki örugglega árið 2015 núna? Annað mætti ætla þegar litið er yfir sviðið hvað varðar málefni samkynhneigðra og hinsegin fólks. Breski sjónvarpsmaðurinn Stephen Fry, sem er félagi í British Humanist Association, systursamtökum Siðmenntar, gerði athyglisverða sjónvarpsþætti sem sýndir voru sl. vetur. Í þáttunum sýndi hann frá ferðum sínum og samskiptum við fólk víða um heim sem hatast út í samkynhneigða og hinsegin fólk. Reyndi hann að fá fólk til að rökstyðja afstöðu sína en sá rökstuðningur var enginn. Írar gengu að kjörborðinu nýverið og kusu um hvort tveir sjálfráða einstaklingar mættu ganga í hjónaband, eins og það komi öðrum eitthvað við hverjir ganga í hjónaband. Frá Kaliforníu bárust þær fregnir fyrir skömmu að lögfræðingurinn Matt McLaughlin teldi samkynhneigða réttdræpa og reynir hann að fá atkvæðagreiðslu um málið í fylkinu. Á Íslandi er afstaðan ekki þroskaðri en svo að sumir verða arfavitlausir við það eitt að grunnskólanemar fái markvissa fræðslu um margbreytileika mannlífsins. Stærsti trúarsöfnuður landsins er enn að vandræðast með málið. Mikið er hægt að flækja lífið. Siðmennt hefur alla tíð, í þau 25 ár sem félagið hefur starfað, staðið með réttindabaráttu samkynhneigðra og hinsegin fólks. Til marks um þann stuðning hlutu Samtökin 78 húmanistaviðurkenningu Siðmenntar árið 2005. Þekktir baráttumenn fyrir réttindum samkynhneigðra, þeir Hörður Torfason og Páll Óskar Hjálmtýsson, hafa einnig hlotið þá viðurkenningu. Undanfarin ár hafa athafnarstjórar Siðmenntar gefið fjölda einstaklinga saman í hjónaband. Skiptir engu máli hvort einstaklingar sem gifta sig hjá Siðmennt eru samkynhneigðir, gagnkynhneigðir eða tvíkynhneigðir. Kynhneigðin kemur okkur ekkert við, það er ástin sem ræður og hamingja einstaklinganna sem leita til Siðmenntar. Athafnarstjórar Siðmenntar hafa ekki frelsi til fordóma þegar kemur að því að gefa fólk saman í hjónaband. Siðmennt mun halda áfram að standa vaktina þegar kemur að mannréttindum og mannvirðingu. Verið endilega með okkur á þeirri
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar