Selur bókamerki og lætur gott af sér leiða Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 8. ágúst 2015 09:00 Ragnhildur Katla hefur alltaf haft gaman af því að föndra. Bókamerkin eru í hinum ýmsu myndum, meðal annars ís, ugla, refur og flugdreki. Mynd/Aðsend „
Það er ekkert sjálfsagt að fá allt upp í hendurnar eins og mörg börn á Íslandi þannig að mér fannst bara gott að geta gert eitthvað,“ segir Ragnhildur Katla Jónsdóttir. Ragnhildur er sextán ára gömul og hefur upp á síðkastið verið að gera bókamerki sem hún mun selja á Fiskideginum mikla sem fer fram á Dalvík um helgina og mun allur ágóði af sölunni renna til UNICEF. Hún segist alltaf hafa haft gaman af því að föndra og meðal annars gert ýmiss konar tækifæriskort sem hún selur á Facebook.com/Rokkrós. „Svo sá ég hugmynd að svona bókamerkjum og fannst þau svo sæt að ég ákvað að prófa að búa þau til. Þetta er einmitt svona stærð sem er gott að selja, ekkert of dýrt og er bara svo sætt eitthvað,“ segir hún og bætir við: „Svo datt mér í hug að reyna að hjálpa og gera eitthvert gagn. Það er mjög takmarkað hvað 16 ára stelpa getur gert til að hjálpa heiminum en mig langaði samt til að gera eitthvað.“ Bókamerkin eru gerð úr pappír og koma meðal annars í formi uglu, flugdreka og refs. Ragnhildur komst í kynni við UNICEF þegar barnahjálparsamtökin sóttu Dalvík heim á dögunum og ákvað í framhaldi af því að athuga hvort hún gæti ekki lagt eitthvað til samtakana og ákvað í kjölfarið að hana langaði til þess að láta gott af sér leiða. Hún hlakkar til að standa vaktina og vonast til að salan muni ganga vel. „Ég vona að þetta gangi svo vel að ég þurfi að gera fleiri. Ég vona að ég geti safnað heilum hellingi fyrir börnin úti í heimi.“
Tengdar fréttir Rafstöðin bræddi úrsér Kvikmyndin Þrestir, sem leikstýrt er af Rúnari Rúnarssyni, verður í aðalkeppni alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í San Sebastián sem fer fram á Spáni í september. 8. ágúst 2015 08:00 Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira
Rafstöðin bræddi úrsér Kvikmyndin Þrestir, sem leikstýrt er af Rúnari Rúnarssyni, verður í aðalkeppni alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í San Sebastián sem fer fram á Spáni í september. 8. ágúst 2015 08:00