Opið bréf til forstjóra Landspítala Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar 5. nóvember 2015 07:00 Ágæti forstjóri! Mikil óánægja ríkir nú meðal ljósmæðra Landspítala eftir að félagsdómur úrskurðaði nú í október í máli sem Ljósmæðrafélag Íslands höfðaði gegn ríkinu. Af hverju kom þessi staða upp? Ljósmæður tóku þátt í tímabundnu verkfalli sem stóð á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá 7. apríl til 13. júní eða þar til að ríkið setti á okkur lög og lauk þannig verkfalli okkar. Um mánaðamót apríl-maí var fyrsti launafrádrátturinn staðreynd og ætluðum við ljósmæður ekki að trúa okkar eigin augum, þetta hlytu að vera mistök sem yrðu leiðrétt strax en margar hverjar voru þá búnar að vinna alla sína vinnuskyldu. Mánaðamót maí-júní gerist það sama, u.þ.b. 55% af launum okkar eru dregin frá okkur þrátt fyrir vinnu. Okkur var brugðið, hvernig gat spítalinn athugasemdalaust tekið við vinnuframlagi okkar ef ekki átti að greiða okkur laun? Sá háttur samrýmist ekki þeirri grunnreglu að starfsmaður á að fá laun fyrir þá vinnu sem hann innir af hendi ef hún fellur utan verkfalls. Ljósmæður sýndu áfram mikla þolinmæði enda birtist frá þér tilkynning á vef spítalans þann 3. júní 2015 um að velferðarráðneytinu hefði verið sent bréf þess efnis að það væri skoðun Landspítala að starfsmenn fái greitt fyrir þá vinnu sem þeir inna af hendi, hvort sem það er á verkfallstíma eða ekki og að ráðuneytið hafi tekið undir þá afstöðu Landspítala Ég spyr því hér, á hverju strandaði? Þegar velferðarráðneytið tók undir afstöðu Landspítala var það þá ekki spítalans að greiða laun fyrir unnin störf? Áfram segir í tilkynningunni 3. júní sl.: „Í framhaldinu hef ég, ásamt framkvæmdastjórn spítalans, ákveðið að allar launagreiðslur til starfsmanna í verkfalli verði yfirfarnar og lagfærðar eftir þörfum að teknu tilliti til vinnufyrirkomulags starfsmanna á stofnuninni.“ (Tilv. lýkur) Þarna var ljósmæðrum létt enda baðstu okkur um, kæri forstjóri, að sýna biðlund þar sem flækjustigið væri hátt og vinnsla málsins krefðist tíma. Við biðum lengi, svo lengi að félagið okkar fór með málið fyrir félagsdóm. Flestir vita um úrskurð félagsdóms en þar dæmdu þrír dómarar af fimm okkur í óhag og eru dómsorð þessara þriggja dómara svo flókin að það er ekki fyrir venjulegan mann að skilja. Tveir dómarar skiluðu hins vegar séráliti og er það álit auðskilið og einfalt og hvet ég almenning til að lesa sérálit þeirra http://www.urskurdir.is/Felagsmala/Felagsdomur/nr/7962)Hvert er hlutverk launadeildar? Ég spyr hvert er hlutverk launadeildar Landspítala? Er það ekki hennar hlutverk að reikna út laun samkvæmt stimpilklukku og senda til Fjársýslu ríkisins? Okkur hefur verið sagt að Fjársýsla ríkisins hafi sent Landspítala reiknireglu sem eingöngu er hægt að nota fyrir dagvinnufólk. Var það þá ekki í höndum Landspítala að senda hana til baka þar sem hún var ónothæf til útreikninga launa fyrir vaktavinnufólk? Okkur finnst eins og allir bendi hver á annan, þ.e. fjármálaráðuneytið, Fjársýsla ríkisins og Landspítalinn. Ég tel að málið hefði ekki þurft að ganga svona langt ef það hefði verið útskýrt á einfaldan hátt varðandi vinnuskipulag vaktavinnufólks. Þeir sem „ráða“ virðast ekki hafa skilið það að stærsti hluti ljósmæðra á LSH vinnur vaktavinnu, þ.e. allan sólarhringinn sjö daga vikunnar. Vinnuvikan er því ekki 8-16 mánudaga til föstudaga eins og þegar um dagvinnumenn eru að ræða. Það var því ekki hægt að nota þá reiknireglu sem Landspítali segir að Fjársýsla ríkisins hafi sent spítalanum til að nota við útreikninga launa.Ótrúleg þrautseigja Ljósmæður hafa verið með langlundargeð mikið og hafa sýnt ótrúlega þrautseigju og sýnt spítalanum traust, þær hafa hlaupið til dag sem nótt, helgar sem virka daga þegar kallað er á aukamannskap vegna álags á deildinni til að sinna konum í barnsnauð. Ófremdarástand er nú að skapast á kvennadeild Landspítala þar sem langlundargeð ljósmæðra er á þrotum. Kæri forstjóri, það verður að finnast lausn á málinu hið snarasta áður en í óefni kemur, það má ekki taka neinar áhættur hvorki varðandi starfsfólk né skjólstæðinga. Fæðingarvakt Landspítala er sú deild sem er með hæsta þjónustustigið á landinu og á þeirri deild verður alltaf að vera fullmannað. Ljósmæður eru ekki tilbúnar til að taka á sig aukavinnu umfram vinnuskyldu meðan þær hafa ekki fengið greitt fyrir þá vinnu sem þær hafa þegar skilað af sér til spítalans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir Skoðun Aðdáunarverð þrautseigja Grindvíkinga Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Tækifæri í stað takmarkana! Bergljót Borg Skoðun Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun Miðflokkarnir tveir í Kópavogi Pétur Björgvin Sveinsson Skoðun Veistu á hvaða lyfjum þú ert? Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir Skoðun Hvar er menningarhús Hafnfirðinga? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Fjölskyldubærinn Akranes Sigurður Vopni Vatnsdal Skoðun Skoðun Skoðun Það er ekki víst að þetta reddist Kristinn Árni L. Hróbjartsson,Hafsteinn Hauksson skrifar Skoðun Sóun á almannafé í stað uppbyggingar Guðbjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Kæmu úr okkar eigin vösum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Stwórzmy społeczeństwo, w którym nikt nie będzie się czuł niewidzialny. Katarzyna Kubiś skrifar Skoðun Fjölskyldubærinn Akranes Sigurður Vopni Vatnsdal skrifar Skoðun Tækifæri í stað takmarkana! Bergljót Borg skrifar Skoðun Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson skrifar Skoðun Aðdáunarverð þrautseigja Grindvíkinga Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Veistu á hvaða lyfjum þú ert? Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar Skoðun Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Viltu borga meira fyrir að leggja bílnum þínum í bílastæðahúsi? Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Réttindabarátta fatlaðs fólks í 65 ár Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Þegar áframhald verður bakslag Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sjálfstætt líf og fimm spurningar sem skipta öllu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samvinnuhugsjón í leikskólamálum Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun „Ég var nú bara að grínast!“ Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hvernig ræktum við frið í huga fólks? Sæunn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Borgin skapi hlutastörf Stefán Pálsson skrifar Skoðun Gleymum ekki hestamönnum og skátum Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Er gott að eldast á Akranesi? Hugrún Eva Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Eitt samtal getur breytt deginum Alda Björk Harðardóttir skrifar Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason skrifar Skoðun Reykjanesbrautin - við leysum hnútinn Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir skrifar Skoðun Menningin er hjartað í Hafnarfirði Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Lækkun gjalda: skref í rétta átt, en enn langt í land Valborg Ösp Árnadóttir Warén skrifar Skoðun Sveitarfélög á Íslandi og Evrópusambandið Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Gefum sköpunargáfu barna það pláss sem hún á skilið Guðrún Lína Thoroddsen skrifar Sjá meira
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun
Skoðun Stwórzmy społeczeństwo, w którym nikt nie będzie się czuł niewidzialny. Katarzyna Kubiś skrifar
Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar
Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason skrifar
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun