Konur hlaupa saman í tuttugu og fimm ár 30. júní 2015 12:00 tuttugu og fimm Hrönn Guðmundsdóttir segir sífellt fleiri taka þátt í hlaupinu og karlar að séu ekki síður velkomnir en konur. fréttablaðið/ernir „
Þessu var upphaflega ýtt úr vör í Garðabæ, en það var Lovísa Einarsdóttir íþróttakennari sem fór af stað með Kvennahlaupið,“ segir Hrönn Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri almenningssviðs Íþróttasambands Íslands, en í dag eru tuttugu og fimm ár frá því að íslenskar konur sameinuðust í að spretta úr spori undir formerkjum Kvennahlaupsins. „Þá voru um tvö þúsund og fjögur hundruð konur sem hlupu, á átta stöðum á landinu,“ segir Hrönn. Hefur hlaupinu vægast sagt vaxið fiskur um hrygg, en í ár hlupu fimmtán þúsund konur og á yfir áttatíu stöðum á landinu. „Einnig er hlaupið erlendis, í á bilinu tíu til fimmtán löndum, svo sem í Bandaríkjunum, Kanada og á Norðurlöndunum,“ útskýrir hún. Enn eru sömu gildin höfð í hávegum og árið 1990, en þau eru að hlaupið snúist um að konur hreyfi sig meira og njóti útiverunnar saman. Hraði og kílómetrafjöldi skipta ekki öllu máli, og er tímataka til að mynda ekki partur af stemningunni. „Kvennahlaupið er orðið að árlegri hefð hjá konum, og margar hverjar mæta með dætur sínar snemma og svo verður þetta ómissandi partur af hverju vori,“ segir Hrönn og undirstrikar að karlpeningurinn sé ekki síður velkominn. „Í ár hljóp einmitt fimmtán ára strákur með okkur og sagði frá að hann ætti bara mömmu og ömmu, svo hann langaði að vera með. Auðvitað er hann hjartanlega velkominn, ásamt öðrum karlkyns hlaupurum.“ Bolirnir sem hlauparar klæðast á ári hverju hafa á sér orð fyrir að vera afar líflegir og bíða margir hverjir spenntir á hverju ári eftir að litavalið verði kunngjört. „Upphaflega gengu konurnar í Kvennahlaupsnefndinni í Garðabæ á milli leikskóla og leyfðu börnunum að kjósa, það var ofboðslega skemmtilegt. En með stækkandi umfangi, en þetta er orðið mjög stórt batterí og gríðarlega mikið umstang sem margir átta sig ekki á, er komið svo að við veljum litinn eldsnöggt hverju sinni,“ segir Hrönn í afmælisskapi og yfir sig ánægð með hve margar konur mæti ár hvert til að hlaupa með kynsystrum sínum.gudrun@frettabladid.is
Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira