ESA hefur formlega rannsókn á samningum Reykjavíkurborgar og Íslenska gámafélagsins Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 30. júní 2015 12:11 Höfuðstöðvar Íslenska gámafélagsins eru í Gufunesi.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur hafið formlega rannsókn á hugsanlegri ríkisaðstoð Reykjavíkurborgar vegna leigu á landi og fasteignum í Gufunessvæðinu. Ástæðan er sú að eftir forathugun telur stofnunin að líkur séu á því að samningar borgarinnar og Íslenska gámafélagsins séu ekki í samræmi við markaðskjör. Þetta kemur fram á vefsíðu eftirlitsstofnunarinnar en ákvörðunin var tekin í dag. Á síðunni er farið yfir forsögu málsins. „Þar til árið 2001 var áburðarverksmiðja starfrækt á Gufunessvæðinu. Árið 2002 keypti Reykjavíkurborg fasteignir Áburðarverksmiðjunnar og tók borgin yfir þágildandi leigusamninga. Árið 2003 voru tilteknir hlutar svæðisins auglýstir til útleigu og gekk Reykjavíkurborg til samninga við nokkra aðila í kjölfarið. Samkvæmt upplýsingum Reykjavíkurborgar voru fasteignir á svæðinu í slæmu ástandi og illa gekk að innheimta leigu. Í ljósi þess var ákveðið að framlengja ekki leigusamninga en ganga þess í stað til samninga við einn aðila. Árið 2005 var gerður samningur við stærsta leigutakann, Íslenska Gámafélagið, um leigu, hreinsun og umsjón í Gufunesi. Frá þeim tíma hefur samningurinn verið framlengdur þrisvar og gildir hann nú til 31. desember 2018.“ Höfuðstöðvar Íslenska gámafélagsins eru í Gufunesi en félagið er með starfstöðvar víðsvegar um landið. Umræddir samningar teljast fela í sér ríkisaðstoð ef mat ESA leiðir í ljós að einkaaðili hefði á markaðsforsendum ekki getað gert samning með sömu skilmálum og Reykjavíkurborg gerði. Stofnunin kallar nú eftir athugasemdum og upplýsingum frá íslenskum yfirvöldum og frá þeim aðilum sem telja sig eiga hagsmuna að gæta.
Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira