Hraðinn vandamálið frekar heldur en öryggisbúnaðurinn Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 14. apríl 2014 19:20 vísir/guðbrandur
Níu vélsleðaslys hafa orðið frá því í nóvember. Þetta eru reyndir menn jafnt sem óreyndir. Vandamálið er kannski ekki öryggisbúnaðurinn heldur hraðinn sem menn eru að keyra á og oft eru menn að keyra við aðstæður sem eru mjög erfiðar. Þetta segir Guðbrandur Örn Arnarson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu í viðtali í þættinum Reykjavík síðdegis. Hann segir álagið á björgunarsveitir undanfarin misseri hafa aukist mikið, en það sé í beinu samhengi við aukningu ferðamanna, bæði erlendra og innlendra. Þá er fólk farið að stunda jaðarsport í auknum mæli sem eykur vinnu björgunarsveita til muna. „Það er kannski ekki skortur á öryggisbúnaði hjá þeim sem eru vanir eða þeim sem eru í mesta jaðarsportinu. Vandinn er að þeir sem eru að ferðast minna telja sig ekki þurfa þennan búnað því þeir eru ekki að gera það sama og þeir sem eru í jaðarsportinu, en þar er þörfin alveg jafn mikil,“ segir Guðbrandur. Guðbrandur segir tækin verða sífellt öflugri og því sé mikil þörf á að fólk auki þekkingu sína og reynslu áður en það fer út í þessar miklu ferðir. „Sleðarnir hafa stækkað og eru þeir orðnir öflugri í dag en þeir hafa nokkurn tímann verið.“ Hann segir þó meira spila inn í en einungis hraðann. Það sé óblíð náttúra Íslands, henni fylgi alltaf ákveðin hætta og því þurfi að fara varlega. Guðbrandur hvetur ferðafólk til þess að nýta sér upplýsingar sem finna má á vefsíðunni safetravel.is og hjá Landssambandi íslenskra vélsleðamanna.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Sjá meira