Allt að 131 prósenta verðmunur á æfingagjöldum í fimleikum Stefán Árni Pálsson skrifar 30. september 2014 11:07 visir/stefán
Verðlagseftirlit ASÍ tók saman hvað það kostar að æfa fimleika fyrir 8-10 ára börn haustið 2014 í u.þ.b fjórar klukkustundir á viku í 4 mánuði. Mikill verðmunur er á hæsta og lægsta verðinu eða 131%. Dýrast er að æfa hjá Gerplu í Kópavogi eða 57.308 kr. en ódýrast hjá Fimleikafélaginu Rán á 24.840 kr. sem er 32.468 kr. verðmunur eða 131%. Gjaldskrá félaganna hefur staðið í stað hjá 3 félögum af 15 frá því í fyrra, en þau félög eru Afturelding, Keflavík og Fimleikafélagið Rán. Hin félögin hafa hækkað gjaldskrána um 2-17%. Mesta hækkunin er hjá Íþróttafélaginu Hamri, sem hækkaði gjaldið úr 24.000 kr. í 28.000 kr. eða um 17%, Fimleikafélag Akureyrar og Fimleikafélag Akraness hafa hækkað um 14%, Grótta um 11% og Ungmennafélagið Selfoss um 10%. Verðlagseftirlitið bar saman gjaldskrá fyrir 8-10 ára börn sem æfa u.þ.b. 4. klst. á viku, en tekinn er saman æfingakostnaður fram að jólum. Ekki var tekið tillit til þess hvaða fimleika er verið að æfa (t.d. almenna, hóp- eða áhalda). Öll félögin eiga það sameiginlegt að setja saman gjaldskrá eftir aldri og fjölda klukkustunda sem æft er í viku hverri. Fram kemur í tilkynningu frá ASÍ að þess beri að athuga að aðeins sé um verðsamanburð að ræða og sú þjónusta eða dagskrá sem sé í boði á námskeiðum félaganna sé ekki metin. Verðlagseftirlitið tekur heldur ekki tillit til safnanna sem íþróttafélögin standa fyrir og eða styrkja frá sveitarfélögunum, hvorki æfingagallar né keppnisgjöld eru með í gjaldinu sem borið er saman.mynd/así
Mest lesið Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Innlent Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Erlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Fleiri fréttir Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Óvíst hvar börnin lenda í haust Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Sjá meira