Hross fá samskonar áverka erlendis Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 12. mars 2014 19:45
Umræðan um „brenglaða menn sem skera hryssur" á sér langa sögu og hefur skotið upp kollinum víðsvegar á Norðurlöndum. Ekki er hægt að sanna að raunverulegur dýraníðingur hafi verið á ferð hér á landi og veitt hryssum áverka á kynfærum eins og fullyrt hefur verið. Í vikunni var greint frá því í fjölmiðlum að hryssu hefði verið misþyrmt með beittu eggvopni á Kjalarnesi. Málið er talið svipa til mála sem komu upp árið 2011 þar sem talið var að fjölda hesta hefði verið misþyrmt á Egilstöðum, í Skagafirði, í Kjós og á Kjóavöllum í Kópavogi. Mál þar sem hryssur eru með skurði undir tagli hafa vakið mikla athygli og óhug hér á landi. Þau hafa verið rannsökuð sem hugsanlegt dýraníð af lögreglu og hafa fengið mikla athygli í fjölmiðlum. Lítið fer þó fyrir umræðu sem sýnir fram á eða sannar að ákveðnir aðilar hafi gerst sekir um slíkt, né hafa fundist vopn sem gætu hafa verið notuð til að vinna hestunum mein. Á vefsíðunni Hestafréttir.is birtist í dag grein þar sem talað er um að umræðan um „brenglaða menn sem skera hryssur” sé ekki ný af nálinni og að í nágrannalöndum okkar eigi slík umræða sér langa sögu. Til að mynda birtist grein á TV2 árið 2008 þar sem danskur dýralæknir til 35 ára sagðist oft hafa séð sár sem líkjast þeim sem „brengluðum mönnum sem skera hryssur” er kennt um og að þau verið af öðrum völdum. Fjölnir Þorgeirsson, ritstjóri Hestafrétta, segir auðvelt fyrir hross á útigangi að slasa sig. Áverkar geta myndast þegar þau slást sín á milli og einnig eru dæmi um að hryssur veiti sér áverka sjálfar í kringum kynfærin þegar þær eru í hestalátum. Þá sé algengt að hross reki sig í hnúta á girðingum og fleira þegar þau klóra sér. Í kjölfar umfjöllunar Hestafrétta hafa borist skilaboð ábendingar frá lesendum þar sem meint dýraníð eru dregin í efa og bent er á að slík umræða komi reglulega upp á Norðurlöndum. Þá segist fólk kannast við að hafa séð svipaða áverka á hrossum.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira