Missa leyfi fyrir áburði úr fiski Garðar Örn Úlfarsson skrifar 1. maí 2014 07:00 Áburður úr fiskafgöngum er plægður ofan í túnið á Miðhrauni 2. Mynd/Aðsend
Fiskúrgangur í gryfju á landi Miðhrauns.Mynd/Aðsend Félagsbúið Miðhrauni á Snæfellsnesi hefur misst leyfi til að bera áburð úr fiski á tún sín. Umhverfisráðuneytið segir um að ræða aukaafurð úr dýri en ekki úrgang og því hafi ekki verið á sviði Heilbrigðisnefndar Vesturlands að leyfa vinnsluna. Fjöldi nágranna Félagsbúsins kærði dreifingu áburðarins. Meðal þeirra er Ólafur Ólafsson í Samskipum, sem á fjórar nálægar jarðir og vill fá lögbann á lagningu íbúanna á Miðhrauni 2 á hitaveitu meðfram þjóðveginum um land hans. Á Miðhrauni er rekin fiskþurrkun og því sem af gengur er breytt í lífrænan áburð, að sögn Bryndísar Huldu Guðmundsdóttur. „Umhverfisstofnun er sammála okkur um að þetta sé rétta leiðin en þetta snýst í raun um hvaða embætti á að gefa okkur þetta leyfi,“ segir hún. Ástþór Jóhannsson, ábúandi á Dal, kveðst ekkert hafa á móti fiskverkuninni annað en „undarlega staðsetningu“ langt inni í landi. „Og fyrir utan ólykt og aukaverkanir vegna úrgangsins sem frá þeim fellur og hefur skolast út í vatnslindirnar neðan við verkunina á ýmsum tímum, og umhverfisráðuneytið hefur nú lýst óhæfu, þá er ekið með hráefni langt að til vinnslunnar og það getur svo varla talist vistvænt, eins og rekstraraðilarnir hafa haldið fram,“ segir Ástþór.
Mest lesið Lést í sprengingunni Innlent Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Innlent Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Innlent Fríhöfnin gjörsamlega galtóm Innlent Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Innlent Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Veður Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Innlent Íhugar að draga úr hernaði í Íran Erlent Skammt stórra högga á milli Veður Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn til viðbótar í tengslum við hópárásina Atvinnurekendur farnir að nota gervigreind til að sía umsóknarflóðið Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Veittu ferðamönnum í vanda aðstoð við Héðinsfjarðargöng Rannsókn á banaslysinu í Fóðurblöndunni gæti tekið vikur og jafnvel mánuði Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Slysið í Fóðurblöndunni, möguleg afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu og enn meira óveður Lokað fyrir umferð um Öxnadalsheiði Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fríhöfnin gjörsamlega galtóm „Auðvitað mikið áfall“ Sprengingin hjá Fóðurblöndunni og áhyggjur af stríðinu í Íran Fimm bíla árekstur á Sæbraut Gert að rannsaka tvö mál betur en gefa ekkert upp Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Lést í sprengingunni Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innviðir og íbúðir eiga að rísa samtímis í Hallahverfi Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Öllu flugi dagsins aflýst Öflug sprenging í Korngörðum og vonskuveður víða Misræmi talið í framburði konu sem sakaði Þorstein um áreitni Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Sjá meira