Ólögleg mótmæli í Tyrklandi Birta Björnsdóttir skrifar 1. maí 2014 20:00
Hátt í 40 þúsund lögreglumenn tóku þátt í aðgerðum gegn mótmælendum í Istanbul í Tyrklandi í dag. Tayyip Erdogan, forsætisráðherra landsins, hafði áður lagt blátt bann við mótmælum á þessum alþjóðlega baráttudegi verkalýðsins. Þúsundir virtu þessa tilskipun forsætisráðherrans að vettugi og söfnuðust saman á Taksim-torginu í Istanbul, þar sem fjölmenn mótmæli gegn stjórnvöldum fóru fram regulega síðastliðið sumar. Einhverjir mótmælenda köstuðu grjóti og eldsprengjum að lögreglumönnunum en talið er að tugir hafi slasast í átökunum.Háværir mótmælendur Forsætisráðherra Danmerkur, Helle Thorning-Schmidt, þurfti heldur betur á raddstyrk sínum að halda þegar hún hugðist halda ræðu yfir fjölmenninu í Fælledparken í Kaupmannahöfn í tilefni dagsins. Einhverjir skipulagðir mótmælendur höfðu flautur, ýlur, lúðra og önnur hávaðaskapandi áhöld meðferðis og létu í sér heyra á meðan forsætisráðherrann ávarpaði viðstadda í mótmælaskyni við stjórnvöld í landinu. Thorning-Schmidt lét þó ekki slá sig út af laginu og kláraði ræðuna, á hæsta raddstyrk.Andi Fidel Castro sveif yfir vötnum Og þúsundir Kúbverja marseruðu um byltingartorgið í Havana í tilefni dagsins. Forseti Kúbu, Raul Castro, veifaði til fjöldans en hélt ekki ræðu að þessu sinni. Þetta var sjötta árið í röð sem Fidel Castro, fyrrum leiðtogi landsins til 49 ára, tók ekki þátt í hátíðahöldunum, en arfleiðar hans var minnst af mótmælendum með sjáanlegum hætti.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira