Gagnrýnir svikin loforð stjórnvalda Birta Björnsdóttir skrifar 1. maí 2014 20:00
Hátíðahöld vegna alþjóðlegs baráttudags verkalýðsins fóru fram í 31 sveitarfélagi um allt land í dag, meðal annars í Reykjavík þar sem menn, konur og börn gengu fylktu liði niður Laugarveginn og til útifundar á Ingólfstorgi. Þó baráttumálin sem viðstaddir voru að berjast fyrir væru fjölmörg voru kjör launþega sem fyrr í brennidepli. „Stóru málin eru auðvitað varanlegt leiguhúsnæði og svo erum við að berjast fyrir jafnrétti í víðum skilningi þess orðs og fjölskyldustefnu, því það er það sem fólk horfir mest til núna," sagði Elva Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, en hún var ein af ræðumönnum dagsins á Ingólfstorgi. Í ræðu sinni sendi hún stjórnvöldum tóninn. „Það var lofað hér í aðdraganda kjarasamninga í desember og janúar að rtíkisstjórnin myndi beita sér fyrir því að gjaldskrárhækkanir myndu ekki taka gildi eins og boðað hefði verið, en nú líða mánuðirnir og ekki er búið að efna það sem lofað var," sagði hún. „Við viljum auðvitað gjarnan sjá að þeir sem eru tekjuhærri séu meira að greiða til samfélagsins heldur en að verið sé að taka upp þjónustugjöld, sem bitna auðvitað helst á þeim sem lægstar tekjurnar hafa." En hvað geta verkalýðsfélögin gert betur til að ná settum markmiðum? „Við þurufm auðvitað bara að halda áfram að koma þessu á framfæri. Við erum að ræða við stjórnvöld og við erum líka að taka málin í okkar henndur." En það voru ekki allir launþegar í fríi i dag. Til dæmis voru allar verslanir Bónus opnar. Anja Pidzo, starfskona í Bónus, sagði þó lítið mál að vera í vinnunni í dag, þetta væri í raun eins og hver annar vinnudagur. Hún sagðist ekki hafa heyrt margar gagnrýnisraddir vegna opnunar á versluninni í dag. „Það var reyndar einn maður sem kom áðan og var að óskapast yfir því að við hefðum opið í dag. En hann var samt kominn til að versla við okkur," sagði Anja.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Borgin greitt nærri tuttugu milljónir fyrir rafmagn í hjólhýsabyggðinni SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sjá meira