Sjálfbær þróun í hársnyrtiiðn Ragnheiður Bjarnadóttir skrifar 5. mars 2014 06:00 Sum innihaldsefni í húð- og hárvörum smjúga í gegn um húðina og fara inn í blóðrás okkar sem hreinsar og skilar þeim út úr líkamanum aftur. Alltaf er verið að rannsaka hvort, hvar eða hversu mikið situr eftir í líkamanum af þessum efnum, hvort þau geti valdið tjóni og hvert leyfilegt hámarkshlutfall innihaldsefnis má þá vera ef það er notað á annað borð. Vísindanefnd Evrópusambandsins um öryggi neytenda (SCCS) gefur frá sér hvert álitið á fætur öðru varðandi hin ýmsu efni sem eru til skoðunar. Allt á þetta að vera leiðbeinandi fyrir framleiðendur, fagfólk og neytendur. En vörur eru misjafnar að gæðum og eftirlit oft takmarkað. Upplýsingar frá þeim sem hafa hagsmuna að gæta eru stundum litlar, umdeilanlegar, misvísandi eða rangar. Varasöm innihaldsefni eru ógn við heilsu fólks sem kemst í beina snertingu við þau flesta daga í starfi sínu. Því þarf að efla áherslu á varnir fagfólks, þekkingu þess á efnum og innihaldi, rýni og öflun upplýsinga og þannig auka þrýsting á framleiðendur að nota vandaðri efni. Mikið er um „grænþvott“ þar sem vara er gefin út fyrir að vera „græn“, lífræn eða náttúruleg þó innihaldslýsing gefi hið andstæða til kynna.Samnorrænt þróunarverkefni Sjálfbær þróun í hársnyrtiiðn (Sustainable development in hairdressing) er heiti á samnorrænu þróunarverkefni sem Tækniskólinn – skóli atvinnulífsins er aðili að. Verkefnið er styrkt með sjóðum Evrópusambandsins (Leonardo) og þátttökulöndin eru auk Íslands Finnland, Danmörk, Noregur og Svíþjóð. Markmið verkefnisins er að þróa samræmt nám og samræmd matsviðmið í umhverfisvænni hárumhirðu, allt frá grunnhugmyndum um sjálfbæra þróun í hársnyrtingu til heildstæðrar „grænnar“ hársnyrtibrautar í þeim tilgangi að bæta valmöguleika, umhverfisvitund, þekkingu, heilsu og starfsframtíð fagfólks í hársnyrtifaginu og auka öryggi viðskiptavina þeirra. Verkefnið fór af stað haustið 2011 og því lýkur í september 2014. Kjarnahópurinn kemur saman fimm sinnum á tímabilinu og miðlar þeirri þekkingu sem til er í hverju landi. Þátttakendur hafa hver í sínu heimalandi sett saman tilraunahóp kennara, nemenda og fagfólks þar sem upplýsingarnar og verkefnin eru mátuð og rædd með það í huga að meta hvort og hvernig þau passa inn í námskrá greinarinnar og geta orðið framtíð fagsins til framdráttar. Markmiðið er einnig að koma á fót upplýsingabanka til að dreifa upplýsingum og þekkingu. Þessu verkefni lýkur næsta haust. Hársnyrtinámið er þegar farið að litast af þeim upplýsingum og áherslum sem verkefnið hefur alið af sér og munu í framhaldinu eiga sinn sess á hársnyrtibraut. Menntað fagfólk greinarinnar mun með upplýstum hætti velja hvaða stefnu það vill taka í faginu og hvaða efni það kýs að starfa með og byggir það val á rýni og þekkingu. Þannig mun skapast aukið jafnvægi á milli menntunar, atvinnulífs, umhverfis og heilsu fagfólks til framtíðar.Lesendur Vísis geta sent inn greinar á greinar@visir.is. Greinunum þarf að fylgja mynd af höfundi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Sjá meira
Sum innihaldsefni í húð- og hárvörum smjúga í gegn um húðina og fara inn í blóðrás okkar sem hreinsar og skilar þeim út úr líkamanum aftur. Alltaf er verið að rannsaka hvort, hvar eða hversu mikið situr eftir í líkamanum af þessum efnum, hvort þau geti valdið tjóni og hvert leyfilegt hámarkshlutfall innihaldsefnis má þá vera ef það er notað á annað borð. Vísindanefnd Evrópusambandsins um öryggi neytenda (SCCS) gefur frá sér hvert álitið á fætur öðru varðandi hin ýmsu efni sem eru til skoðunar. Allt á þetta að vera leiðbeinandi fyrir framleiðendur, fagfólk og neytendur. En vörur eru misjafnar að gæðum og eftirlit oft takmarkað. Upplýsingar frá þeim sem hafa hagsmuna að gæta eru stundum litlar, umdeilanlegar, misvísandi eða rangar. Varasöm innihaldsefni eru ógn við heilsu fólks sem kemst í beina snertingu við þau flesta daga í starfi sínu. Því þarf að efla áherslu á varnir fagfólks, þekkingu þess á efnum og innihaldi, rýni og öflun upplýsinga og þannig auka þrýsting á framleiðendur að nota vandaðri efni. Mikið er um „grænþvott“ þar sem vara er gefin út fyrir að vera „græn“, lífræn eða náttúruleg þó innihaldslýsing gefi hið andstæða til kynna.Samnorrænt þróunarverkefni Sjálfbær þróun í hársnyrtiiðn (Sustainable development in hairdressing) er heiti á samnorrænu þróunarverkefni sem Tækniskólinn – skóli atvinnulífsins er aðili að. Verkefnið er styrkt með sjóðum Evrópusambandsins (Leonardo) og þátttökulöndin eru auk Íslands Finnland, Danmörk, Noregur og Svíþjóð. Markmið verkefnisins er að þróa samræmt nám og samræmd matsviðmið í umhverfisvænni hárumhirðu, allt frá grunnhugmyndum um sjálfbæra þróun í hársnyrtingu til heildstæðrar „grænnar“ hársnyrtibrautar í þeim tilgangi að bæta valmöguleika, umhverfisvitund, þekkingu, heilsu og starfsframtíð fagfólks í hársnyrtifaginu og auka öryggi viðskiptavina þeirra. Verkefnið fór af stað haustið 2011 og því lýkur í september 2014. Kjarnahópurinn kemur saman fimm sinnum á tímabilinu og miðlar þeirri þekkingu sem til er í hverju landi. Þátttakendur hafa hver í sínu heimalandi sett saman tilraunahóp kennara, nemenda og fagfólks þar sem upplýsingarnar og verkefnin eru mátuð og rædd með það í huga að meta hvort og hvernig þau passa inn í námskrá greinarinnar og geta orðið framtíð fagsins til framdráttar. Markmiðið er einnig að koma á fót upplýsingabanka til að dreifa upplýsingum og þekkingu. Þessu verkefni lýkur næsta haust. Hársnyrtinámið er þegar farið að litast af þeim upplýsingum og áherslum sem verkefnið hefur alið af sér og munu í framhaldinu eiga sinn sess á hársnyrtibraut. Menntað fagfólk greinarinnar mun með upplýstum hætti velja hvaða stefnu það vill taka í faginu og hvaða efni það kýs að starfa með og byggir það val á rýni og þekkingu. Þannig mun skapast aukið jafnvægi á milli menntunar, atvinnulífs, umhverfis og heilsu fagfólks til framtíðar.Lesendur Vísis geta sent inn greinar á greinar@visir.is. Greinunum þarf að fylgja mynd af höfundi.
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun
Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir Skoðun
Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason Skoðun
Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir Skoðun
Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun