Innlent

Brotist inn í Grundaval í nótt

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Brotist var inn í matvöruverslun á Akranesi í nótt.
Brotist var inn í matvöruverslun á Akranesi í nótt. VÍSIR/GVA
Einn hefur verið handtekinn grunaður um innbrot í matvöruverslunina Grundaval á Akranesi í nótt. Skessuhorn greinir frá.

Maðurinn var ekki staðinn að verki að sögn lögreglu en grunsemdir bárust að viðkomandi. Málið er í rannsókn og yfirheyrslur stóðu yfir í morgun.

Ekki er ljóst að sögn lögreglu hversu miklu var stolið úr versluninni á þessari stundu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×