Hvað fór úrskeiðis við breytingar á íslensku stjórnarskránni? Stefán Árni Pálsson skrifar 30. apríl 2014 10:52 Háskóli Íslands. visir/Vilhelm
Lagastofnun Háskóla Íslands stendur fyrir norrænu málþingi um stjórnskipunarrétt sem haldið verður í Reykjavík dagana 2. og 3. maí 2014 undir yfirskriftinni Magtfordeling og grundlovsændringer i nordisk forfatning. Málþingið, sem verður bæði á ensku og Norðurlandamálum, er haldið í samvinnu við lagastofnanir háskólanna í Árósum, Osló og Uppsölum og er liður í samstarfsneti fræðimanna við lagadeildir þessara skóla. Markmið málþingsins er að leiða saman helstu sérfræðinga Norðurlandanna á sviði stjórnskipunarréttar og efna til samræðu fræðimanna á sviði lögfræði og stjórnmálafræði, lögfræðinga, stjórnmálafræðinga, háskólanema, dómara, embættismanna í stjórnsýslu, þingmanna o.fl. um stöðu stjórnskipunar á Norðurlöndum og breytingar á norrænum stjórnarskrám sem nýlega hafa verið gerðar eða eru í undirbúningi. Helstu stjórnskipunarsérfræðingar frá öllum Norðurlöndunum munu m.a. fjalla um það hvernig stjórnarskrám er breytt, formlega og óformlega. Björg Thorarensen lagaprófessor mun í erindi sínu fara yfir það sem fór úrskeiðis við endurskoðun íslensku stjórnarskrárinnar og lærdóma sem má draga af því og Stefanía Óskarsdóttir lektor í stjórnmálafræði fjalla um það hvernig forseti Íslands hefur breytt valdsviði forsetaembættisins án formlegra breytinga á texta stjórnarskrárinnar. Í Noregi er unnið að að heildarendurskoðun á mannréttindaákvæðum á stjórnarskránni og mun Eivind Smith prófessor við Oslóarháskóla gera grein fyrir því ferli sem er mjög ólíkt íslensku endurskoðuninni. Michael H. Jensen prófessor við háskólann í Árósum fjallar um kosti og galla þess hversu erfitt er að breyta dönsku stjórnarskránni, en þar þarf tiltekið hlutfall kjósenda að samþykkja allar breytingar á stjórnarskrá. Í Svíþjóð og Finnlandi voru gerðar ýmsar stjórnarskrárbreytingar árið 2011, m.a. vegna veru ríkjanna í ESB og er nú fjallað um stofnanir sambandsins í þessum stjórnarskrám.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira