Innlent

Bólusetning í stað geldingar á grísum

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Gelding íslenskra grísa munu heyra sögunni til þegar bólusetningar gegn galtarlykt verða teknar upp en það er lykt, sem myndast í kjötinu sé grís ekki geldur. Yfirdýralæknir segir bólusetningu mjög jákvæða fyrir grísina.

Matvælastofnun og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið í samráði við Svínaræktarfélag Íslands hafa boðað til fræðslufundar í næstu viku um bólusetningu gegn galtarlykt en bólusetning gegn galtarlykt getur komið í stað hefðbundinnar geldingar með skurði. Fjallað verður um þennan nýja valmöguleika, kosti og galla og hvað þurfi að gera til að bændur geti bólusett í stað þess að gelda.

„Dýralæknar verða að gelda með deyfingu eða svæfingu en það eru til aðrar leiðir, annað hvort að hætta að gelda, slátra fyrr eða nota bólusetningu í staðin fyrir geldingu, bólusetja gegn galtarlykt”, segir Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir og hún heldur áfram.

„Það er þannig að þegar grís verður kynþroska þá myndast lykt í kjötinu, eða galtarbragð, sem neytendum finnst ekki þægileg lykt, hún er fráhrindandi, þess vegna er verið að gelda grísina en það er komið á markaðinn bóluefni sem hægt er að bólusetja gegn þessari lykt, að hún myndist.”

Sigurborg segir að bólusetning sé miklu betri meðferð fyrir grísina sjálfa.

„Það er enginn sársauki þessu tengdur eins og aðgerðin sem slík, það eru tvær bólusetningar sem þarf að framkvæma, það er eins og hver önnur nálastunga en ekki nærri því eins mikið inngrip,” segir Sigurborg. Þannig að þetta er jákvætt fyrir grísina? “já, mjög jákvætt.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×