Lífið

Algjör mýta að konur séu ekki fyndnar

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Snjólaug Lúðvíksdóttir og Bylgja Babýlóns hvetja fyndnar stelpur til að hafa samband við sig.
Snjólaug Lúðvíksdóttir og Bylgja Babýlóns hvetja fyndnar stelpur til að hafa samband við sig. Vísir/Ernir
„Við erum með þessi kvöld einu sinni í mánuði í Stúdentakjallaranum. Hér eru bæði reyndir og óreyndir uppistandarar að koma sér á framfæri. En okkur vantar bara fleiri konur,“ segir Snjólaug Lúðvíksdóttir uppistandari, sem sér um skipulagningu uppistandskvöldanna.

„Við Bylgja Babýlóns höfum bara verið einu stelpurnar hérna og við viljum bara hvetja allar sem eru með þetta í maganum til að koma og vera óhræddar við það að hoppa upp á svið og segja brandara,“ segir hún.

Ferill hennar sem uppistandari hófst í London fyrir um ári síðan. „Ég tók einu sinni þátt í uppistandi sem var í strætó, svokallaður „Comedy Bus“. Það er örugglega ein furðulegasta lífsreynsla mín til þessa. Þetta var tvöfaldur vagn með opnu þaki og ég var á efri hæðinni, svo það heyrðu allir bút og bút af bröndurunum. Á tímabili var ein manneskja í strætónum. Ég er fær í flestan sjó eftir þetta,“ segir Snjólaug og hlær.

Hún segist vilja jarða þá mýtu að konur séu ekki fyndnar í eitt skipti fyrir öll. „Ég fæ stundum, frá bæði konum og körlum, hið vafasama hrós sem flestir kvenkyns grínistar kannast ábyggilega við: „Mér finnst konur aldrei fyndnar, en þú varst góð.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.