Innlent

Fækkun stjórnenda bitnar á skólastarfi

Anna Kristín segir óljóst hvort sameiningar hafi svarað kostnaði sem af þeim hlaust.
Anna Kristín segir óljóst hvort sameiningar hafi svarað kostnaði sem af þeim hlaust. Fréttablaðið/Ernir
Efnahagskreppan bitnaði mest á stjórnun í skólastarfi, segir Anna Kristín Sigurðardóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, um nýlega rannsókn starfsmanna Menntavísindasviðs. Rannsóknin fjallaði um áhrif efnahagskreppunnar á skólastarf í grunn-, leik- og framhaldsskólum í Reykjavík.

„Stöðugildum deildarstjóra í grunnskólum Reykjavíkur hefur fækkað úr 84 árið 2007 í tæplega 40 árið 2013, eða um rúmlega helming, sem er mjög mikið,“ segir Anna Kristín.

„Svona mikil fækkun stjórnenda eykur álag á stofnanirnar. Fækkunin hefur bitnað á þróunarstarfi og samstarfi við foreldra og öðru en beint lýtur að kennslu,“ segir Anna Kristín og bætir við að „verkefni sem áður var sinnt af deildarstjórum eru nú á hendi skólastjóra eða umsjónarkennara“. Þar að auki hafi stuðningskerfi skólanna dregist saman og tækifærum til símenntunar fækkað.

Hins vegar hafi tekist að verja kennsluna sjálfa, enda sé fjöldi nemanda á hvert stöðugildi kennara svipaður og var árið 2005. Hrunið og niðurskurðurinn sem því fylgdi hafi ekki valdið kreppu í skólastarfi í þeim skilningi að því gildismati sem skólastarfið byggði á væri verulega ógnað. „Þótt það kæmi þreyta í skólastarfið þegar frá leið olli það ekki skólakreppu,“ segir hún.

Aðspurð hvort sameiningar í grunn- og leikskólum hafi borgað sig segir Anna Kristín: „Ávinningurinn við sameiningar var bara sá sem ætlað var. Það átti bara að spara um eitt stöðugildi stjórnenda í hverri sameiningu.“

Hvort það hafi svarað þeim kostnaði sem hlaust af sameiningunum sé óljóst. „Þeir sem tóku þátt í rannsókninni sögðu ýmislegt hafa verið til bóta. Hins vegar hefði þurft meiri stuðning við sameininguna sjálfa. Það kostar að sameina en sá stuðningur kom ekki því farið var í sameiningar vegna niðurskurðar. Niðurskurðartími er líklega ekki besti tíminn fyrir sameiningar,“ segir Anna Kristín.

Meiri óánægja virðist hafa verið í leikskólum en grunnskólum með sameiningarnar. „Þetta var svolítið erfitt í leikskólunum. Það var sums staðar svolítil sorg og mikill hiti í umræðunni. Það gæti verið af því að þetta eru minni stofnanir og hugsanlega viðkvæmari,“ segir Anna Kristín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×