Hænur í höfuðborginni Ugla Egilsdóttir skrifar 15. febrúar 2014 16:00 Emil Adrian Devaney. Mynd/Vilhelm Gunnarsson.
Sveitarómantíkin breiðir úr sér á höfuðborgarsvæðinu, en þar færist húsdýrahald í aukana. Fréttablaðið tók viðtal við þrjá Reykvíkinga sem halda hænur.Fékk hænur í afmælisgjöfEmil Adrian Devaney, íbúi í 101 „Ég sá fyndin hænumyndbönd á YouTube. Þá hugsaði ég með sjálfum mér: „Mig langar í hænur,“ svo ég bað mömmu um hænur í afmælisgjöf, sem ég fékk. Fyrst fékk ég tvær hænur. Svo kvörtuðu nágrannar yfir hávaða, og þá kom í ljós að önnur hænan var hani, og ég þurfti að skila honum. Þá var ég leiður, því mér þótti vænt um hann. Þá fékk ég aðra hænu, sem ég nefndi Karamellu, því hún minnir mig dálítið á karamellu og ég var að borða karamellu þegar ég fékk hana. Hin hænan heitir Kolbrún. Þær verpa daglega, líka yfir vetrartímann. Þær eru í kofa úti í garði. Við gefum þeim afganga og hugsum vel um þær. Það er hitapera í kofanum sem við kveikjum á, því stundum getur orðið kalt yfir veturinn, og þá kveikjum við á henni. Ég á líka hamstur og tvo ketti. Í fyrra átti ég fiska en fiskabúrið sprakk, og við þurftum að gefa alla fiskana.“Dögg Hjaltalín og hænur frá vinstri Dögg, Agnes Hjaltalín Andradóttir og Freyja Hjaltalín Ólafsdóttir. Mynd/Pjetur Sigurðsson.Verpa einu eggi á dagDögg Hjaltalín, íbúi í 101 „Hænurnar hafa sloppið, en þær fara ekki langt. Nágranni okkar lét okkur vita einn morguninn að ein hænan væri úti í runna en þrátt fyrir ítrekaða leit yfir daginn náðum við henni ekki fyrr en seinnipartinn þegar við komum heim. Þá hitti ég nágranna minn sem sagðist hafa verið að elta hænuna án árangurs og fleiri nágrannar bættust í hópinn til að aðstoða við að fanga hænuna sem tókst að lokum með aðstoð fiskiháfs. Hænurnar eru heimavanar og eiga því ekki að fara langt. Við höfðum íhugað það í nokkur ár að fá okkur hænur til að auka sjálfbærnina því þær éta alla matarafganga og í staðinn fáum við egg. Yfir dimmasta og kaldasta vetrartímann verpa hænurnar oftast ekki en með hækkandi sól fara þær aftur í gang og verpa þá yfirleitt einu eggi á dag. Við erum með þrjár hænur eins og er og dóttir mín, Agnes, nefndi hænurnar Gleimmérey, Sólskinsbros og Línu langsokk.“Maron Bergmann Jónasson og hæna. Mynd/Stefán Karlsson.Tryggir fæðuöryggi á heimilinuMaron Bergmann Jónasson, íbúi í 104 „Hænurnar mínar eru að verða komnar úr eggjaeign. Þær eru orðnar svo gamlar að þær verpa ekkert í bili. Þær taka smá spretti og verpa í nokkrar vikur. Þá getur þetta farið upp í egg á hverja hænu á dag. En svo verða þær að hvíla sig inn á milli. Ég byrjaði að halda hænur árið 2009. Ég sagði svona í gríni eftir hrunið að þetta væri gert til þess að tryggja fæðuöryggi á heimili mínu. Ég er fæddur og uppalinn í sveit og mig hefur alltaf langað að eiga hænur. Mig langaði ekkert að eiga hund eða kött. Það voru ekki margir með hænur á þessum tíma, en við höfðum aðstæður til þess. Vorum með kalda geymslu á bak við bílskúrinn þar sem við settum upp hænsnakofa. Þar fluttu þær inn. Við höfum verið með páfagauka og naggrísi og ég veit ekki hvað áður. Það gengur ekki að vera með hana. Við vorum með hanaunga fyrst, en þeir voru farnir að tjá sig fullmikið á morgnana, þannig að nú erum við bara með hænur. Svo býr kanína með þeim. Ég er hissa á því hvað sambúðin er friðsæl. Hænurnar voru aðeins að pikka í kanínuna fyrst, en svo fór hún að svara fyrir sig og nú eru allir vinir. Ég þorði ekki annað en að fylgjast með fyrstu dagana og vikurnar svo enginn léti lífið.“
Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Sjá meira