Lífið

Fyrsta fatalína vekur heimsathygli

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Sólveigu Káradóttur hefur gengið vel koma sér áfram með fatamerkið sitt Galvan London í heimi tískunnar.
Sólveigu Káradóttur hefur gengið vel koma sér áfram með fatamerkið sitt Galvan London í heimi tískunnar. Mynd/Saga Sig
Sólveig Káradóttir er stödd hér á landi í tilefni afmælis tengdamóður sinnar, Olivia Harrison. Eiginmaður hennar til tveggja ára, tónlistarmaðurinn Dhani Harrison, er nýfarinn af landi brott en Sólveig varð eftir til að eyða nokkrum dögum með fjölskyldu og vinum.

„Við eigum eiginlega tvö heimili, í London þar sem við búum á fallegu æskuheimili Dhani í Friar Park ásamt tengdamóður minni og svo í Los Angeles þar sem Dhani vinnur. Það er því mikið flakk á okkur á milli landa og svo gott að Ísland er akkúrat þarna í miðjunni og ég nýti stundum tækifærið og kem við hér í nokkra daga. Það tekur á að flakka svona á milli en það vill svo skemmtilega til að systir mín og fjölskylda hennar eru nú flutt til LA svo að ég get eytt meiri tíma með henni og litlu frændsystkinum mínum,” segir Sólveig en Dhani vinnur við að semja tónlist fyrir bíómyndir og sjónvarpsefni.

Veðjuðu á réttan hest

Það eru tvö ár síðan hugmyndin að fatamerkinu Galvan London kviknaði en það var að frumkvæði vinkonu Sólveigar sem var boðið í tíu brúðkaup það sumarið sem öll gerðu kröfu um svokallaðan „black tie“-klæðaburð.

„Það er mikið um svoleiðis fatareglur úti þar sem ætlast er til þess að gestir klæðist síðkjól og smóking. Fallegur síðkjóll úr góðu efni getur kostað allt að 4 þúsund pund og ekki á færi allra að kaupa,“ segir Sólveig en í kjölfarið sáu þær stöllur glufu á markaðnum fyrir fatamerki sem byði upp á síðkjóla og fínni fatnað á minni pening en gengur og gerist en samt úr góðum efnum.

Og þær veðjuðu á réttan hest. Galvan hefur á stuttum tíma tekist að ná ótrúlegum árangri innan tískuheimsins. Sólveig er titluð listrænn stjórnandi og hennar hlutverk er að flakka á milli stóru sýninganna og fá innblástur fyrir línuna sem hún vinnur svo náið með Önnu-Christine Haas sem er hönnuður Galvan. Katherine Holmgren er stjórnarformaður og Carolyn Hodler sölustjóri. Sólveig er ánægð með þetta teymi og segir þær vinna vel saman.

„Síðustu tvö ár höfum við verið mjög sniðugar í að koma merkinu á framfæri sem skilar sér. Við vorum á tískuvikunni í París og London í byrjun árs þar sem merkinu var vel tekið. Anna-Christine er búsett í Düsseldorf, en margar þýskar verslanir hafa keypt línuna.“

Þrátt fyrir að fyrsta línan sé á leiðinni í búðir á næstu dögum hafa stórar og virtar verslanir á borð við Harvey Nichols,Brown, Bergdorf Goodman og Neiman Marcus þegar keypt línuna. Einnig hefur Vogue fjallað um merkið en meiri meðbyr er varla hægt að hugsa sér í þessum geira.

Tískuáhuginn frá afa

Leikkonurnar Gwyneth Paltrow og Gemma Arterton hafa sést á rauða dreglinum í fatnaði frá Galvan sem Sólveig segir vera góða auglýsingu. 

„Við þekkjum stílista Gwyneth sem kom og fékk föt frá okkur. Það er heiður fyrir okkur að stjörnur á borð við þær vilji klæðast fatnaði frá okkur en við viljum líka velja og hafna hverja við klæðum. Við höfum alveg neitað fólki sem vill fá lánað hjá okkur enda skiptir það gríðarlegu máli upp á ímyndina.”

Sólveig segir velgengnina vera mörgu að þakka, allar eru þær nokkuð vel tengdar inn í þennan heim, en ljóst er miðað við viðtökurnar, að svona merki vantaði í flóruna. 

„Við vorum að stíla inn á ákveðið gap á markaðnum. Fína kjóla úr gæðaefnum sem eru nútímalegir en kosta ekki handlegg. Það var greinilega eitthvað sem vantaði og þess vegna er okkur vel tekið. Við erum líka ekki að fara framúr okkur, við gerum lítið í einu, einbeitum okkur að kjólum fyrst en í framtíðinni sé ég fyrir mér að bæta frekar við línuna.“

Þrátt fyrir að hún sé sálfræðimenntuð kemur það engum á óvart að hún láti til sín taka í tískuheiminum. 

„Ég hef alltaf haft gaman af tísku og haft áhuga á fötum. Það er eitthvað sem liggur vel fyrir mér og ég vissi alltaf að mig langaði að vinna við eitthvað tengt þessum heimi. Ég held ég hafi þetta frá afa mínum, Kristjáni Davíðssyni listmálara, sem var með næmt auga og fatahönnuðir kepptust um að fá að klæða hann í nýjustu tísku þegar hann var ungur og upprennandi myndlistarmaður. Næsta lína verður einmitt innblásin af list honum til heiðurs.“ 

Hefði viljað hitta tengdapabba

Það eru tvö ár síðan Sólveig gekk að eiga Dhani við hátíðlega og fallega athöfn á æskuheimili hans í Friar Park í Henley. Dhani er einkasonur Bítilsins George Harrison, sem lést árið 2001, og er Sólveig því gift inn í eina frægustu tónlistarfjölskyldu í heimi.

Brúðkaupið vakti athygli og birtust fréttir af því í öllum helstu miðlum, meðal annars í bandaríska Vogue sem birti fagra brúðarmynd af hjónakornunum sem ljósmyndarinn Saga Sig tók. 

Sólveig er ekki mikið fyrir að flagga einkalífi sínu og gerir lítið úr því að vera tengd inn í fræga fjölskyldu. Í raun er stutt síðan þau tvö létu sjá sig saman opinberlega eins og rauða dreglinum. Núna sér Sólveig hins vegar tækifæri í því að koma fatamerki sínu á framfæri á viðburðinum en viðurkennir að þetta sé ekki það skemmtilegasta sem hún gerir. 

„Við skipuleggjum það vel þegar við ákveðum að fara saman eitthvað opinberlega þar sem eru ljósmyndarar. Ég veit að þetta er leiðinlegt svar en fyrir mér er þessi fjölskylda ekkert öðru vísi en hver önnur. Mest hefði ég bara viljað hitta karlinn, sem er faðir mannsins sem ég elska mest.” 

Þegar Sólveig gifti sig var það fatahönnuðurinn frægi Stella McCartney sem hannaði brúðarkjólinn. Fatahönnuðurinn er fjölskylduvinur sem einnig var gestur í brúðkaupinu ásamt föður sínum, tónlistarmanninum Paul McCartney. Sólveig segir Stellu vera mikla fyrirmynd, sem fatahönnuð og einnig sem móður sem tekst að blanda saman fjölskyldulífi og frama.

„Við höfum ekki náð að tala saman um Galvan London en það er klárlega eitthvað sem ég ætla að gera enda þekkir hún þetta ferli út og inn. Hún er líka mjög upptekin en tekst á aðdáunarverðan hátt að blanda saman fjölskyldunni og vinnunni. Alveg til fyrirmyndar,“ segir Sólveig sem dreymir um stóra fjölskyldu.

„Ég hef alltaf sagt að ég ætli að eiga fimm börn en stóra systir mín, sem á tvö börn, sagði mér að byrja fyrst á einu og sjá svo til,“ segir Sólveig hlæjandi. 

Nordicphotos/getty
Háleit markmið fyrir framtíðina

Sólveig hélt nýverið upp á þrítugsafmælið sitt með stórri veislu í London þar sem þemað var Sound of Music sem er uppáhaldsbíómynd Sólveigar. Hún tekur hækkandi aldri fagnandi.

„Ég finn helst fyrir aldrinum þegar ég kem hingað heim því hér er meiri pressa á mann að stofna fjölskyldu og hefja barneignir. Það þekkist ekki úti enda byrjar fólk seinna að eignast börn, allavega í kringum okkur. Dhani er einkabarn og langar í stóra fjölskyldu svo ef við ætlum í fimm börn þurfum við samt kannski að fara að spýta í lófana, þá erum við að tala um að ég verð meira og minna ólétt næstu tíu árin,“ segir Sólveig skellihlæjandi og heldur áfram:

„Í augnablikinu erum við sátt í því sem við erum að gera núna. Hann í tónlistinni í LA og ég á fullu með Galvan London sem ég get unnið í hvar sem er í heiminum. Merkið á hug minn allan þessa stundina enda er ég með háleit markmið og drauma fyrir framtíðina. Á maður ekki alltaf að vera með það?“

Fallegur síðkjóll frá Galvan London.
Merkið er nútímanlegur og leitast eftir að hanna síðkjóla fyrir minni pening en gengur og gerist.
Einföld og nútímanleg hönnun.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×