Ég vissi vel að ég gæti skorað Henry Birgir Gunnarsson skrifar 10. maí 2014 08:00 Kristján sýndi hvað í honum býr gegn Fylki Vísir/Daníel
Hinn bráðefnilegi leikmaður FH, Kristján Gauti Emilsson, átti frábæran leik og skoraði í 3-0 sigri FH á Fylki. Hann var besti leikmaður 2. umferðar Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins. Það vita allir að mikið býr í Kristjáni Gauta en honum var algjörlega fyrirmunað að skora á síðustu leiktíð. Þá komst hann ekki á blað í deildinni í sextán leikjum. „Það er hrikalega gott að ná að skora snemma og vera kominn á blað. Ég vissi vel að ég gæti skorað og bara tímaspursmál hvenær mörkin kæmu,“ segir Kristján Gauti og bætir við að markaþurrðin hafi ekkert lagst á sálina. „Ég var alveg rólegur. Ég komst vissulega í færin í fyrra en það vantaði að klára þau. Ég æfði mikið aukalega með Lauga aðstoðarþjálfara í vetur og gekk vel að skora á undirbúningstímabilinu. Ég kom því fullur sjálfstrausts til leiks.“ Kristján Gauti segist ekki ætla að vera með neinar yfirlýsingar um hversu mikið hann ætli að skora. Í staðinn ætlar hann að láta verkin tala á vellinum. Hann fór ungur að árum út til Liverpool en sneri svo aftur heim í uppeldisfélagið. Þessi 21 árs strákur fer ekki leynt með að stefnan er tekin aftur út. „Þetta er mjög mikilvægt tímabil fyrir mig. Ég þarf að sýna að ég hafi það sem til þarf. Ég stefni klárlega aftur út en hvort það verður eftir þetta tímabil eða næsta skiptir ekki öllu máli.“ Yfirburðir FH gegn Fylki voru með ólíkindum. Liðið skaut 24 sinnum að marki og hitti rammann 13 sinnum. Mörkin hefðu því hæglega getað orðið fleiri. „Á mjög góðum degi hefðum við getað skorað tíu mörk. Við erum ekki að nýta færin vel. Svo hjálpaði ekki að gömlu Fylkismennirnir Ingimundur og Albert voru fullkurteisir við sína gömlu félaga og vildu greinilega ekki skora,“ segir Kristján Gauti léttur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira