Innlent

Borgin kaupir metan- sorpbíla

Freyr Bjarnason skrifar
Fyrstu fjórir bílarnir verða afhentir í október.
Fyrstu fjórir bílarnir verða afhentir í október. Mynd/Aðsend
Reykjavíkurborg hefur gert samning um kaup á allt að tólf metanknúnum sorphirðubílum. Fyrstu fjórir bílarnir verða afhentir í október og kosta þeir 217 milljónir króna.

Þrír bílanna eru með tvískiptum sorpkassa þannig að hægt er að sækja tvo flokka af úrgangi samtímis. Sá fjórði er með krana sem gerir m.a. kleift að hífa upp niðurgrafna gáma.

„Það er mikið hagræði af þessum bílum, bæði hvað varðar vinnulag og umhverfismál,“ segir Guðmundur Benedikt Friðriksson, skrifstofustjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði. „Við þurfum ekki að senda tvo bíla í hverja götu heldur getur sami bíllinn tekið blandaðan úrgang og pappír í tvískipt hólfið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×